Kirkjuritið - 01.04.1964, Side 28
170
KI R KJ U It I TI D
Svartar fjaðrir fóru sigurför um landið. Síð'an var beðið eftir
liverri nýrri ljóðabók hans með óþreyju. Af ljóðum Davíðs
seldist livert upplagið af öðru, þó að aðrar ljóðabækur seldust
lítl eða ekki. Hann varð strax á unga aldri okkar vinsælasta
þjóðskáld.
Að loknu stúdentsprófi fór liann út um lönd, allt til Suður-
landa. Þar verður bann fyrir margvíslegum álirifum, lieyr sé
mörg yrkisefni, verður lieimsborgari. En samt leitar liugur
hans alltaf heim í dalinn á ný, lieim á æskuslóðirnar við Eyja-
fjörðinn. Hann gerist fyrst kennari á Akureyri, svo amtsbóka-
vörður. Það starf á vel við hann. Hann elskar bækur og eignast
sjálfur stórt bókasafn, ver margri tómstund til að fullkomna
það og gera því til góða. Á Akureyri byggir bann sér hús og
þar er liann gerður að heiðursborgara á sextugsafmælinu, elsk-
aður og virtur af öllum.
Andi frá ókunnu landi
Ég rek ekki þessa sögu lengra, bún er oss öllum kunn.
Meðan Davíð bjó á meðal vor, fannst oss Norðlendingafjórð-
ungur fylla landið liálft, eins og eitt sinn var kveðið. Þó að erfitt
sé að meta eitt skáld á móti öðru, má tvímælalaust telja liann
eitt vort mesta og vinsælasta Ijóðaskáld, eftir að Mattliías og
Einar Benediktsson burfu af sviðinu. Hann var mikilvirkur
ritliöfundur og skáld, en þó umfram allt vandlátur, vildi aldrei
láta neitt frá sér fara nema það, sem fágað var af ítrustu vand-
virkni. Hugur lians var eins og gjósandi liver, sem hellti geisla-
regni sínu yfir öll landsins börn. Hann yljaði oss með guðmóði
sínum, sagði til syndanna, ef honum bauð svo við að liorfa, en
töfraði þó fyrst og fremst með yndisleik og fegurð ljóða sinna.
Allir elska bækurnar bans. Hann orti ekki aðeins fyrir sjálf-
an sig. Hann orti fyrir þjóð sína, var sál liennar og samvizka.
Sjálfur var liann:
ungmennið fagra og ennisbjarta,
sem hvílir í leiöslu við landsins hjarta
og I jóð þess nemur.
Hann var söngvari liins nýja Islands með djúpar rætur í for-
tíðinni. Hann var innblásinn, kallaður til að yrkja.