Kirkjuritið - 01.04.1964, Page 40
GuSmundur Kr. Guðnason:
Kirkjurækni
Áhugi fólks virðist vera fremur lítill nú á tímum fyrir því að sækja
kirkju. Kirkjurnar eru víða hálf tómar þegar messað er nema að eitt-
hvað sérstakt standi til svo sem skirn, ferming, eða jarðarfarir, en þá
fyllast kirkjurnar á skammri stund. Og stundum verður fólk frá að
hverfa sökum þrengsla, a. m. k. er þetta svo sumstaðar þar sem ég
þekki til. Oft er það svo að ])að fólk sem býr lengst í burtu frá kirkj-
unni, sækir helzt kirkjur, en síður fólk sem býr svo að segja við kirkju-
vegginn.
Hér áður fyrr var ekki verið að fást um það þótt kirkjugestir þyrftu
að fara jafnvel tveggja til þriggja klukkustunda leið til kirkju hvora
Ieið og oft í misjafnri færð. Það sýndi hinn brennandi áhuga fólksins
fyrir því að sækja kirkju til að hlýða á boðskap Jesú Krists og eiga
samverustund með presti sínum og söfnuði. En nú mun kannske ein-
hver spyrja. Af hverju stafar þetta áhugaleysi ?
Sumir halda því fram að útvarpið valdi því að einhverju leyti, síðan
farið var að útvarpa guðþjónustum. En ég er ekki þeirrar skoðunar að
fólk hætti frekar að sækja kirkju þótt það geti hlýtt messu heima hjá
sér. Það er dálítið einkennilegt að kirkjusókn skuli vera miklu verri
í kaupstöðum en í sveitunum. Ég hefi nokkrum sinnum komið til
Reykjavíkur og hlýtt messu í Dómkirkjunni, Fríkirkjunni og fleiri
kirkjum höfuðstaðarins, en víðast hvar hefur mér virzt kirkjusókn
vera frekar lítil, en þó misjöfn nokkuð. Fyrst þegar ég kom til Reykja-
víkur þá var ég við hátiðamessu I Dómkirkjunni á þjóðhátíðardaginn
17. júní og var þá hvert sæti skipað í kirkjunni og fjöldi fólks stóð
einnig. En ég var einnig við messu í sömu kirkju stuttu síðar og þá var
fremur fátt fólk við messu. í sveitum er ])að svo að oft kemur fólk frá
öllum bæjum í sókninni til kirkju og stundum allt heimilisfólkið frá
sumum heimilum, þó er þetta kannske nokkuð misjafnt og fer vitan-
!ega eftir ástæðum eins og gengur.
Að lokum óska ég þess af heilum hug að kirkjusókn megi breytast
til hins betra í framtíðinni.