Kirkjuritið - 01.04.1964, Blaðsíða 50
192
KIRKJUniTIÐ
út í Japan á daglegu máli alþýðunn-
ar kogatai. Allir geta lesið og skrif-
að, en Jiað eru um 100 milljónir.
Þetta fólk hefur raunverulegan hók-
memitaáhuga. Það liefur orðið til
þess, að japanska Biblíufélagið hef-
ur á undanförnum þremur árum
dreift um 2,7 milljónum helgra rita.
1 stóru dagblöðunum, sem koma
út í inilljón eintökum er vitnað
næstum daglega í Bihlíuna, og menn
eru ekki taldir menntaðir, ef þeir
þekkja ekki neitt til Biblíunnar,
skrifar prófessor Hother Paludan í
Kristeligt Dagblad.
Japanska Bibliufélagið hefur
ákveðið að laka fullan Jiátt í þeirri
áætlun samtaka Biblíufélaga í heim-
inuni, sem her nafnið: „Guðs orð til
nýrrar kynslóðar!“ En takmarkið er,
að koma Bihlíu inn á sérhvert heiin-
ili í heiminum með því að dreifa ár-
lega 150 milljónum lielgra ritninga.
Iíinn 9. desemher s. 1. var sögu-
legur dagur í Japan. Það tókst i
fyrsta skipti í búddatrúarlandi að
fá samtök búddatrúarmanna, All
Buddist Association, til að þiggju
með þakklæti 3000 Biblíur að gjöf
á sarnkomu, þar sem 35 forystumemi
búddatrúannanna voru hoðnir undir
forystu yfirprestsins Soto Zen.
Hann er jafnframt forseti All Build-
ist Association. 15 kristnir prestar
og kristniboðar voru cinnig við-
sladdir.
Þessi gjöf var möguleg, vegna þcss
að danska Bihlíufélagið sendi jap-
anska Bihlíufélaginu liluta af nýórs-
söfnun sinni 1962 til dreifingar a
Bihlium. (Heimild, Utsyn, nr. 9—
1964 og The Lutheran, nr. 2—1964).
Hvenær skyldi íslenzka Biblíufc-
lagið verða fært um að leggja frani
slikan skerf?
Þýðing sú, hin ágæta, er birtist í Jiessu hefti af Allt eins og blómstri'ti eina
kom fyrir tveiin áruiii í merku ensku tímariti ásamt islenzka textanum-
Benti dr. Sigurður Nordal mér á hana, og votta ég honum þakkir fyrir.
G. Á.
KIRKJURITIÐ 30. árgangur — 4. hefti — apríl 1964
Tímarit gefið út af Prestafélagi íslands. Kemur út 10 sinnum á ári. VerS kr. 150 ár9-
Ritstjóri: Gunnar Árnason
Ritnefnd: Bjarni Sigurðsson, Jón Hnefill Aðalsteins-
son, Kristján Búason, Sigurður Kristjánsson.
Afgreiðslu annast Ragnhildur isaksdóttir, Hagamel 43»
sími 17601.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.