Kirkjuritið - 01.06.1964, Blaðsíða 19
Viðtal við séra Jón Auðuns,
dómprófast
(Dómprófasturinn dvaldi erlendis mikinn hluta vetrar,
lcngst á Spáni. Þótti ritstjóranuin forvitnilegt a<V spyrja
tíiVinda þacVan og þakkar greiíV og góð svör).
Hvernig kom þér Spánn almennt jyrir sjémir?
Um Spán „almennt“ get ég ekki dæmt. 1 il þess þyifti ég
lengri dvöl en þrjá mánuði í landinu. Suður-Spánn lifir í minn-
iugu minni sem ótriilega sólríkt land, þar sem enginn er vetur
°g fegurð fjallanna mikil, líklega ekki sízt vegna þess, að flest
eru þau skóglaus. Sierra Nevada teigir jökultindana tvisvar
sinnum lengra til lofts en Örævajökull. Fjölbreytni þessa jökul-
kfýnda fjallgarðs Suður-Spánar er undursamleg. Sii fegurð
hlasti við gluggum okkar daglega í tvo mánuði og við kvöddum
l'ana með söknuði. Ein fegursta leið, sent ég hef farið á sjó, er
sigbngin frá Malaga í suður fvrst og síðan í norður meðfram
SPánarströnd. Þetta sólbakaða, jökulkrýnda land er lirjóstrugt,
011 náttúrufegurð er fjölbreytt og mikil.
®er Spánn mikil merki Máranna?
^árar seltu á Spán og Spánverja svip, sem seint verður af-
máður. Byggingarlist Spánverja ber árhifum Máranna oflugt
Er það sízt að furða um þjóð, sem befur liin stórkostlegu
uyggingaafrek Máranna í Alliambra, Sevilla og Cordoba tynr
^gum. Fram að síðustu áratugum skreyttu efnaðir Spanverjar
llUs sín að utan með fögru mósaíkskrauti. Annars má sjá ahnt
17