Kirkjuritið - 01.06.1964, Side 50
288
KIRKJURITIÐ
á vegum þjóðkirkjunnar. Er hún til
húsa í gamla prestssetrirm, sem er
vel hrúklegt að sumarlagi. Sjó-
niannastofan var opin í tvo mán. s.l.
sumar og sótlu liana um 2000 gestir.
Þar gátu gestir fengið' kaffi og veit-
ingar. Sjómenn áttu þar aðgang að
hókuni og hlöðum, höfð'u aðstöðu
til hréfaskrifta, þá gátu þeir skemmt
sér við spil og töfl og einhverja tóm-
stundaiöju. Fátt kom þar af útlend-
inguni, en nokkrir Norðmenn. Mik-
ið skrifað af bréfum. Starf forstöðu-
mannsins var fólgið fyrst og fremst
í niargs konar fyrirgreiðslu. Kona
prestsins hefur tekið heinan þátt í
þessu starfi með honuin.
A Raufarhöfn er ekkert sjúkraliús
en næsti læknir er á Kópaskeri.
Atvinna er sæmileg á staðnuin,
uniiið við byggingar og síldarafurð-
ir. Margt af unga fólkinu leitar at-
vinnu annars staðar. Fiskirí var lítið
í vetur og Iítið róið. — K. B.
Kosi'ö var í Oddaprestakalli 31.
maí. Séra Stefán Lárusson fékk 64
atkvæði. Séra Óskar Finnbogason
56. Kosningin var ólögmæt.
Séra Björn O. Björnsson, sem
undanfarið þjónaði Seyðisfjarðar-
prestakalli í fjarveru Erlendar próf-
asts Sigmundssonar, liefur nú veriö
settur til að þjóna Kirkjubæjar-
prestakall fyrst uin sinn.
Séra Benjumín Kristjánsson lief-
ur verið settur prófastur í Eyjafjarð-
arprófastsdæmis í stað Sigurðar
vígslubiskups Stefánssonar, sem sagt
hefur af sér prófastsembætti sakir
vanheilsu.
Utanfararstyrkir. Séra Jón Hnef-
ill Aðalsteinsson, séra Tómas Guð-
mundsson og Björn Björnsson,
kand. theol. liafa fengið styrk frá
Lútherska heimssambandinu til
námsdvala erlendis. Ennfremur fer
séra Þórir Stephensen út til náms-
dvalar á næstunni.
Séra Helgi Sveinsson í Hveragerði,
lézt af slysförum í Kaupmannahöfn
3. júní og var jarðsettur frá dóm-
kirkjunni í Reykjavík 13. s. m. Hans
verður minnzt í næsta hefti.
Séra Lárus Halldórsson, hefur
verið settur til að þjóna Hveragerð-
isprestakalli fyrst um sinn.
Séra Jón Auihins, dómprófastur,
tekur á ný við embætti sínu 1. júli-
KIRKJURITIÐ 30. árgangur — 6. hefti — júnl 1964
Tímarit gefið út af Prestafólagi íslands. Kemur út 10 sinnum á ári. Verð kr. 150 árG-
Ritstjóri: Gunnar Árnason
Ritnefnd: Bjarni Sigurðsson, Jón Hnefill Aðalsteins-
son, Kristján Búason, Sigurður Kristjánsson.
Afgreiðslu annast Ragnhildur ísaksdóttir, Hagamel 43,
sími 17601.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.