Kirkjuritið - 01.01.1966, Qupperneq 50
44
KIRKJURITIÐ
Ný starfsgrein
Sunnudaginn 12. des. s. 1. vígði biskupinn, herra Sigurbjörn Einarsson,
fyrstu safnaðarfreyjuna, sem tekur til starfa hérlendis. Var hún vígð til
þjónustu í Hallgrímsprestakalli í Reykjavík. Vígsluvottar systir Akerström
frá Svíþjóð og séra Jalcob Jónsson, sóknarprestur í Hallgrímsprestakalli-
Safnaðarfreyjan nýja lieitir Unnur Anna Halldórsdóttir og er aðeins 23ja
ára að aldri. Fóstra að mennt. Hefur þar að auki dvalið ár í Uppsölum
til framhaldsnáms. Hún mun a. m. k. fyrst um sinn aðallega vinna að
harna- og unglingastarfi.
Slík stétt er víðast fjölmenn og á vonandi eftir að eflast hér. Verkefnin
ærin í stórum prestaköllum.
Akureyrarkirkja 25 ára. Þegar Hrafngils-
kirkja var flult frá Hrafnagili í Eyjafirði
til Akureyrar 1863 höfðu bæjarbúar lengi
þráð að kirkja væri reist á staðnum. Var
verkinu lokið um mitt sumar 1863. Þeim
alhurði fögnuðu hæjarhúar svo sem getið
er í sögu Akureyrar. „... var þá fagnað-
arveifa á hverri stöng og siglutré, fall-
liyssum var skotið, hlómakrans festur upP
og gleðiópin hljómuðu.“ Yfirsmiður var
J. Chr. Stepánsson.
Þessi ldýlega, látlausa timburkirkja var
í innbænum, og var liún sóknarkirkja
Akureyringa í 77 ár. Margir Akureyring-
ar ininnast enn þessa inusteris. Þegar
hætt var að nola kirkjuna, var hún rifin
niður, og nú hýður gamli kirkjugrunn-
urinn eftir því, að þar rísi kapella. Von-
andi kemur þar aftur guðshús áður en
langt um líður. Minjasafnið á Akureyri,
sóknarnefnd og sóknarprestar hafa áhuga
á því að flytja gamla kirkjn á kirkjustaðinn, sem i senn gæti varðveitt hin-
ar sögulegu minjar gömlu kirkjuhúsanna og þjónað hlutverki sínu við
helgar kirkjuathafnir.
Mörgum árum áður en núverandi kirkja á Akureyri var reist, var farið
að ræða um það í sóknarnefnd og á safnaðarfundum, að gamla kirkjan
væri illa staðsett fyrir fjölda hæjarbúa og ónóg fyrir söfnuðinn við mörg
tækifæri. Stofnað var Kvenfélag Akureyrarkirkju, en formaður þess var
frú Ásdís Rafnar, vigsluhiskupsfrú, og var aðaláhugamál félagsins að hvetja
til nýrrar kirkjuhyggingar. Á sóknarnefndarfundi í skrifstofu séra Friðriks
J. Rafnars, vígsluhiskups, 22. sept. 1938, var bygging kirkjunnar ákveðin.
Vígsla kirkjunnar fór fram sunnudaginn 17. nóv. 1940, 26. sunnudag
eftir trinitatis, og var hún vígð af þáverandi hiskupi íslands, herra Sig-
urgeiri Sigurðssyni.