Kirkjuritið - 01.04.1973, Side 9

Kirkjuritið - 01.04.1973, Side 9
margt annað kemur til álita, en bein- línis löggjöfin um hjúskap, þegar hugað skal að þjóðfélagslegri mótun fjölskyldunnar. Ég hefi kosið að staldra einkum við tvennt, lífsgilda- matið, sem áður er nefnt, og kröfur hins iðnvœdda nútímasamfélags til fjölskyldunnar. Fátt einkennir betur lífsviðhorf manns og konu hins nýja tíma en krafan um sjálfsforrœði og sjálfs- ákvörðunarrétt einstaklingsins. Hvað svo sem segja má um pólitísk kerfi, sem beita miðstjórnarvaldi til þess að skerða persónufrelsi einstaklingsins, þar með talið skoðana- og ákvörðun- arfrelsi, þá hafa þeir tímar, sem vér nú lifum, verið nefndir öld persónunn- ar, þau skil í mannkynssögunni, þeg- ar einstaklingurinn skynjar í vaxandi mœli möguleika til að þroska hœfileika sína til œ meiri lífsnautnar. Þessari skynjun fylgir krafa til þjóðfélagsins, að það sé þannig úr garði gert, að það gefi hverjum og einum tœkifœri til þess að þroska og síðan að nýta hcefileika sína til fulls. Þessa viðhorfs, am mikilvœgi sjálfsins og rétt þess til sjálfstœðrar tjáningar, verður nú hvarvetna vart í hinum þróaðri þjóð- félögum. Sums staðar birtist það í cnynd svokallaðrar mannúðarstefnu, en sú stefna leggur mikla áherzlu á mennskuna, en þá um leið á sjálf mannsins og hvernig það verði varð. veitt andspœnis ómennskum öflum í þjóðfélaginu. Á öðrum stöðum, t. d. hér á landi, birtist krafan um sjálfsfor- r'œði og sjálfsákvörðunarrétt einstakl- lngsins einkum í kröfunni um jafnrétti a milli kynjanna, en einnig í kröfunni Urn jafna aðstöðu þegnanna, hvar á landinu sem þeir búa. Enn fremur má benda á, að þcer umrœður, sem hér hafa farið fram um atvinnulýðrœði, þ. e. þátttöku launþega í stjórn fyrir- tœkja o. fI., snerta beint eða óbeint sjálfsákvörðunarréttinn. Nú má spyrja: Hvaða áhrif hafa þessi nýju viðhorf á fjölskylduna? í fyrsta lagi má nefna, að valda- hlutföllin innan fjölskyldunnar breyt- ast. Húsbóndavald, og einhliða ákvarðanir um málefni fjölskyldunn- ar í skjóli þess, líður undir lok. í stað þess kemur hin lýðrœðislega fjöl- skylda, þar sem enginn er settur ofar öðrum, og meiri háttar ákvarðanir eru teknar sameiginlega af foreldrum og í samráði við börnin. f öðru lagi leiðir það af hinu nýja valdajafnvagi innan fjölskyldunnar, að eiginkonan áskilur sér allt að því sama rétt til starfa utan heimilis sem eiginmaðurinn hefur notið um langan aldur. Sérhver hindrun sem eiginkon- unni kann að vera sett í þessu tilliti er af henni skoðuð sem ögrun við sjálfsvirðingu hennar. I þriðja lagi leiðir það af síaukinni þátttöku giftra kvenna í atvinnulífinu, að uppeldi barna flytzt út af heimil- inu. Hlutur skólanna verður œ um- fangsmeiri í þessu tilliti, en jafnframt gerast þœr raddir œ hávœrari, sem krefjast þess, að hið opinbera láti reka uppeldisstofnanir fyrir börn allt frá fœðingu til skólaaldurs, sem séu opnar börnum allra foreldra, sem þess œskja. í fjórða lagi er sérstök ástœða til þess að vekja athygli á, hvaða áhrif hin sjálfhverfu viðhorf einstaklings- ins hafa á afstöðu makanna til hjú- 7 L

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.