Kirkjuritið - 01.04.1973, Page 41

Kirkjuritið - 01.04.1973, Page 41
SVEINBJÖRN S. BJARNASON, CAND. THEOL.: Kristnihald á Skotlandi ^egar rœtt er um kristnihald á Skot- 'andi, kemur fyrst í hug Öldungakirkj- °n, sem hefur verið við lýði þar sem Þióðkirkja i nœr fjögur hundruð ár. Hvergi annars staðar hefur öldunga- kirkjuskipulagið náð eins mikilli út- breiðslu og veldi og þar. í þessari grein verður því að mestu fjallað um Öld- angakirkjuna og þó sérstaklega þjóð- kirkjuna ,,The Church of Scotland". Um leið verður reynt að varpa nokkru ■iósi á Reformertu kirkjuna í heild og ^elztu einkenni hennar. Til þess að skilja kirkjuna í dag er nauðsynlegt að 9era sér grein fyrir sögulegum bak- 9runni hennar og sambandi hennar við aðrar kirkjudeildir. Saga Eftir því sem bezt er vitað, var fyrsti kristniboðinn í Skotlandi Bretinn St. Ninian, sem byggði fyrstu steinkirkj. una í Skotlandi Candida Casa árið 379. St. Ninian rak öflugt kristniboðs- starf meðal Picta í Suður-Skotlandi. Nœst fréttum við af St. Columba (597), sem er þekktastur kristniboða á Skotlandi, og barst orðstír hans jafnvel út til íslands, þar sem ein fyrsta kirkja á Islandi var kirkja heil- ags Kolumkilla, reist af Örlygi Hrappssyni á Esjubergi á Kjalarnesi. St. Columba var skozkur að uppruna, en hlaut menntun sína á írlandi, og snéri síðan aftur og stofnaði klaustur á eyjunni lona út af vesturströnd Skot- lands, þar sem síðan var rekið öflugt kristniboðsstarf. Keltneska kirkjan eða kirkja St. Columba var við lýði óháð Rómarkirkjunni fram á 11. öld. Má telja víst að papar þeir, sem komu hingað út, fyrir landnám norr- cenna manna, hafi tilheyrt keltnesku kirkjunni. Á 11. öld nœr Rómarkirkjan undir- tökunum, og var þá skozka kirkjan undir erkibiskupinum í York. Árið 1175 var skozka kirkjan, Ecclesia Scot- icana, viðurkennd sem sjálfstœð, án afskipta enskra erkibiskupa. Þróun 39

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.