Kirkjuritið - 01.04.1973, Side 47

Kirkjuritið - 01.04.1973, Side 47
sakramentið eða þekkingarleysi. í þessum héruðum hefur ávallt verið lögð mikil áherzla á ábyrgð þess, sem neytir sakramentisins og varað mjög við að neyta þess óverðugur. Reynt hefur verið að berjast gegn þessu á síðari árum, en lítið orðið ágengt. Altarisgöngutíminn er raunveruleg kirkjuhátíð, sem stendur í marga öaga. Fólk kemur vlða að og er um kyrrt yfir hátíðina. Altarisgöngutím- inn er frá fimmtudegi til mánudags. Á fimmtudegi eru haldnar guðs- þjónustur í öllum kirkjum sóknarinnar °9 til þess að unnt sé að anna því °9 til að auka hátíðarblœinn koma 2-3 aðkomuprestar til aðstoðar. Föstudagurinn er kallaður ,,Mens day," „Karla dagur." Þá er guðsþjón- usta í aðalkirkjunni. Einn af öldung- unum velur texta óundirbúið. Þessi texti er síðan lagður fyrir söfnuðinn t'l umrœðu. Yfirleitt eru aðkomumenn, sem taldir eru hafa eitthvað til mal- anna að leggja, beðnir um að tala Urn textann ásamt völdum heima- rnönnum, allir eru að sjálfsögðu ó- undirbúnir. Á laugardegi eru síðan bœna- stundir í öllum kirkjum, og síðan renn- Ur sunnudagurinn upp. Þá er guðs- þiónusta á hádegi með altarisgöngu. ^uðsþjónusta þessi er mjög löng, hátt a þriðja tíma. Þeir, sem neyta vilja sakramentisins, heimamenn með sín altarisgöngukort, sitja sér á bekkjum klœddum hvítum dúk. Öldungarnir aðstoða við útdeilingu sakramentis- ins. Um kvöldið er síðan þakkarguðs- þjónusta í aðalkirkjunni og ! útkirkj- Urn á mánudegi. Heimilisguðrœkni er víðast hvar mjög mikil í þessum héruðum. Borðbœnir eru ávallt fluttar og kvöldbœnir fjöl- skyldunnar, sem heimilisfaðirinn leið- ir. Þá er yfirleitt lesinn kafli úr Ritn- ingunni og Davíðssalmur sunginn eða lesinn. Llf þessa fólks er mótað af Ritningunni, og er það dýrmœt reynsla að hafa haft tœkifœri til að lifa meðal þess og taka þátt I trúar- lífi þess. Sveinbjörn S. Bjarnason. HEIMILDASKRÁ The Oxford Dictionary af the Christian Church, London 1958. Henderson G. D., Presbyterianism, Aberdeen 1954. The Claims of the Church of Scotland, London 1951. The Church of Scotland, Edinborg 1969. Nisbet J. The Churches in Scotland to-day, Glasgow 1950. Burleigh J. H. S. A Church History of Scotland, London 1 960. Molland Einar, Konfesjonskunnskap. The Church of Scotland, útg. The Church of Scotland 1970. Westminster Confession of Faith, útg. The Free Presbyterian Church of Scotland 1970. 45

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.