Kirkjuritið - 01.04.1973, Side 57
minning
)ÓN PÉTURSSON
fyrrverandi prófastur
Við vorum 41 að tölu, stúdentarnir
frá Menntaskólanum í Reykjavík vor-
ið 1924. 7 stúlkur og 34 piltar. Frœg-
ur varð þessi árgangur stúdenta —
Viginti quattuor — af þvi að 17 okk-
ar, eða helmingur piltanna, lukum
embœttisprófi í guðfrœði frá Háskóla
íslands, 13 árið 1928 og 4 árið eftir.
Er það einsdœmi, bœði í sögu Háskól-
ans og Prestaskólans, að svo margir
samstúdentar gerist guðfrœðingar,
enda oft til þess vitnað. Og af þess-
um hópi tóku allir nema tveir vígslu,
og gerðust prestar í kirkju lands vors.
En tíminn liður og gefur engin grið.
Eftir rúmlega eitt ár eigum við Viginti
quattuor brœður 50 ára stúdentsaf-
mœli. All margir hafa þegar látið af
störfum sem opinberir starfsmenn, og
eftir eitt eða tvö ár mun dagsverki
okkar allra lokið lögum samkvœmt.
Af okkur, sem urðum guðfrœðingar,
hafa 6 látizt, eða rúmlega þriðjung-
urinn. Síðastur þeirra var Jón Jéturs.
sson, fyrrverandi prófastur, en hann
lézt 23. janúar s. I., tœplega 77 ára
að aldri.
Séra Jón Pétursson var kjarnakvistur
á merkum œttarmeiði. Hann var
fœddur á Kálfafellsstað 1. marz 1896
og voru foreldrar hans hjónin frú
Helga Skúladóttir, þingeysk að œtt og
uppruna, og stóðu að henni traustar
bœndaœttir, og séra Pétur Jónsson,
sem var langa tíð prestur á Kálfafells-
stað í A.-Skaftafellsprófastsdœmi,
þjóðkunnur maður fyrir frábœrt
minni og þekkingu á œttfrœði og per-
sónusögu. Afi séra Jóns og alnafni
var Jón Pétursson, háyfirdómari, al-
55