Kirkjuritið - 01.04.1974, Blaðsíða 44
fyrir áhrifum af þessari úthellingu
Heilags anda. Meira að segja hafa
þessi áhrif náð aftur fyrir járn- og
bambustjöldin svonefndu. Víðast hefur
fylgt mikil endurnýjun í lífi trúaðra
manna og einkenni þau, sem voru
nefnd hér að framan, hefur ekki skort.
En eins og í öllum vakningum þá
hafa einnig komið fram neikvœðar
hliðar. Sumir hafa tekið gjafirnar fram
yfir gjafarann og orðið uppteknir við
að sœkjast eftir náðargjöfunum, gjaf-
anna sjálfra vegna. Þetta hefur svo
leitt til þess að „holdið" hefur tekið
að ráða stefnunni, og hefur þá það,
sem átti að verða til blessunar fyrir
likama Krists, kirkjuna, orðið til tjóns
og sundurlyndis. Og á hinn bóginn
hafa sumir fyllzt vanþóknun, og vís-
að boðskapnum um gjöf andans á
bug, oft einungis af vanþekkingu á
Guðs orði. Þeir hafa ekki viljað eiga
neitt á hœttu eða blátt áfram sagt, að
hér vœri á ferð alvarleg villa, sem
forðast bœri.
Áhrif vakningarinnar hafa víða orð-
ið mikil í Evrópu. Myndaðar hafa
verið hreyfingar (öðrum óháðar) eins
og „Fountain Trust" í Bretlandi með
Séra Michael Harper í Biskupakirkj-
unni sem leiðtoga og „Agape" í
Noregi. Hvatamaður að stofnun
norsku samtakanna er séra Hans
Jakob Fröen, en hann er sjómanna-
prestur á vegum norsku kirkjunnar í
Osló. Vakningin hefur einnig orðið
hvati ýmsum alheimshreyfingum ungs
fólks, sem starfa að kristniboði á Vest-
urlöndum og meðal heiðingja. Má í
því sambandi nefna „Youth with a
Mission." Er það geysiöflug kristni-
boðshreyfing ungs fólks, sem hefur
það að markmiði að ná til allra manna
með fagnaðrerindið á okkar tímum. Er
það starf rekið í um 100 löndum og
á síðastliðnu ári voru um 15000 sjálf-
boðaliðar starfandi víða um heim.
Greinar af þessari hreyfingu eru t. d.
i Noregi (Ungdom i oppdrag) og I
Danmörku (Ungdom med opgave).
Bróðir Andrés, öðru nafni „Smyglad
Guðs", samnefnd bók kom út um síð-
ustu jól hérlendis um starf hans að
dreifingu Biblíunnar í kommúnistaríkj-
unum, starfar t. d. mikið á vegum
„Youth with a Mission".
Þrátt fyrir mannleg mistök, sem
aldrei verður komizt hjá og finnast i
öllum kristnum vakningum, verður
ekki annað sagt, en að þessi nýja
Biblíuvakning (eins og margir vilja
kalla hana) hafi þegar fœrt kirkjLi
Krists mikla blessun og örvað hana
til dáða. Hvert kristið samfélag ®tti
því að veita viðtöku öllu því, sem Guð
sendir til að efla kœrleika og auka
útbreiðslu fagnaðarerindisins, en
þeirrar þjónustu gefur Guð náðargjaf'
irnar og sinn Heilaga anda. Kristm
kirkja hefur of lengi staðið úrrceða-
laus og hjálparvana gagnvart a
kristnun heimsins. Nú nœst aðeins
með boðskap Krists til 2 af þeim
milljónum, sem árlega bœtast l'1
mannlegt samfélag á vorri jörð. K'r I
an hefur því ekki efni á að hafna
krafti Heilags anda, því án hans f®r
hún engu til vegar komið.
Ef einhverjir vilja afla sér freka.i
upplýsinga um efni greinarinnar
þeim bent á að skrifa til „SHALOA
Pósthólf 9034 Reykjavík, og munU
þeim þá verða sendar frekari upp ýs
ingar samkvœmt fyrirspurn.
42