Kirkjuritið - 01.04.1974, Blaðsíða 80
og erlendis
Staða kristindómsins í kommúnista-
löndunum.
Menntamenn í Vestur-Evrópu rœða nú
að vonum mjög um grimmilega með-
ferð Sovétstjórnarinnar ó andófsmönn-
um. Kunnir rithöfundar og vísinda-
menn eru dœmdir til langvarandi
fangelsisvistar vegna djarflegra um-
mœla sinna, Ekki er langt síðan tveir
slíkir sakborningar gerðu fulla „jótn-
ingu" á blaðamannafundi. Þetta
minnir óhugnanlega mikið á aðfarirn-
ar í Moskvu á fjórða tug aldarinnar.
Ef til vill eru enn þá ógeðfelldari frétt-
irnar um, að andófsmönnum sé kom-
ið fyrir á geðsjúkrahúsum, þar sem
þeir hljóta „meðferð", þangað til
persónuleika þeirra hefur verið breytt
og útrýmt.
Vér viljum ekki láta undir höfuð
leggjast að benda einnig á það, að
kristnir menn búa við mikla erfiðleika
í löndum kommúnismans og ekki að-
eins 1 Sovét Rússlandi. ,,Bibel und
Gemeinde" nr. 3/1973 segir þœr frétt-
ir frá Tékkóslóvakíu, að evangelisku
prestarnir hafi fengið heimild yfirvald-
anna til þess að halda ráðstefnu í
einn dag í Prag. Þeim hafði tvívegis
áður verið synjað um leyfi til að efna
til nokkurra daga námskeiðs. Nú
glöddust þeir stórlega. En viti menn:
Daginn fyrir ráðstefnuna var leyfið
tekið aftur. Ekki var unnt svo seint að
koma skilaboðum til allra. Prestarnir
héldu fullir eftirvœntingar til Prag, en
komu að lokuðum dyrum. ,,Bibel und
Gemeinde" nefnir nöfn nokkurra
presta, sem hefur verið vikið frá störf-
um í seinni tíð. Að sjálfsögðu kemur
þetta mjög illa niður á starfinu, °9
fjölskyldur prestanna eru á flœðisken
staddar.
í Austur-Þýzkalandi horfir einnig
mjög illa. Það er t. d. mjög erfitt fyrir
börn presta og annarra þeirra, sern
sinna kirkjulegri þjónustu, að fa a
nema við háskólann.
Hinn marxiski kommúnismi er 09
verður fjandsamlegur kristindómnum-
Marga landa vora dreymir um mar^
isma, sem sé hlutlaus eða jafnvel vin^
samlegur gagnvart kristindómnum.
þetta er draumur, — hœttule9ur
draumur.
Óvenjuleg jólakveðja
• -K _
Stórfyrirtœki eru vön að senda v|^
skiptavinum slnum jólakveðjur
horfa ekki í kostnaðinn, sem þv' V ®
78