Kirkjuritið - 01.04.1974, Síða 78
„camping tours" inn ó hálendi ís-
lands. Ég nefni kvikmyndasafn, er
œtlað sé unglingum á aldrinum 14—
17 ára og til notkunar á fundum með
unglingum og foreldrum þeirra —
myndir, sem vekja spurningar og geta
verið umrœðugrundvöllur. Ég nefni
nýtt fermingarkver, bœkling fyrir for-
eldra, er bera börn sín til skírnar, út-
gáfu skemmtiefnis fyrir unglinga og
útgáfu heildar „prógrams" fyrir
sunnudagaskóla, stofnun hversdags-
skóla á þéttbýlissvœðum, aðhlynning
að þeim kristnu hópum, sem til eru í
skólum landsins og eflingu slíkra
hópa, hjálp til handa þeim ungling-
um stórborgarsvœðisins, er reika um
götur borgarinnar að dansleikjum
loknum, leggjast til hvílu á berangri,
í anddyrum fjölbýlishúsa eða inni í
bílum, en eru álitnir þjófar og ákœrð-
ir fyrir lögreglu og lokaðir inni í
fangageymslum með afbrotamönnum.
Um leið eru þeir svo að segja „stimpl-
aðir" og hafa beðið skipbrot.
Þau eru að vísu fleiri verkefnin, er
bíða afgreiðslu, en sum þeirra, sem
ég hef getið, eru komin á nokkurn
rekspöl. Það verkefni, sem ég tel þó
mestu skipta, er enn ótalið. Öll þau
áðurnefndu geta þó þjónað því verk-
efni, og að þv! verkefni vinnum við,
eins og áður segir, en hér á ég við
leitina að nýjum og fleiri starfskröft-
um. Það verkefni er brýnast að mínu
viti, því það er skoðun mín, að œsku-
lýðsstarf verði ekki unnið af vifi nema
með persónulegum tengslum við
œskulýðinn. Unglingar í dag þrá að
geta treyst og finna, að þeim er treyst.
Traust skapast aðeins með persónu-
legum tengslum, og nú ber hér allt
að sama brunni. Safnaðarstarfið hlýt-
ur að vera það, sem mestu máli skipt-
ir. Æskulýðsfulltrúi getur ekki eignast
persónuleg tengsl við hið unga ísland,
en sóknarprestar og starfslið þeirra
getur eignast traust safnaðar síns. Ég
get nú lokið þessum orðum mínum a
upphafsorðum mínum. Starf œsku-
lýðsfuIItrúa er að þjóna barna- °9
unglingastarfi safnaðanna. Tilgang-
urinn með kristnu œskulýðsstarfi er
hins vegar ekki sá að skapa traust.
Það er aðeins leiðin að markmiðinu.
Tilgangurinn er sá, að benda til hans,
sem gerði okkur öll elsku verð. Æsku-
lýðsstarf kirkjunnar á íslandi er
kristniboðsstarf. Með því starfi skaj
framtíð þessarar þjóðar byggð a
bjarginu eina ,,og steypiregn kom of-
an, og beljandi lœkir komu og storm-
ar blésu, og skullu á þv! húsi, en þa®
féll ekki, þv! að það var grundvallað
á bjargi."
Sr. Guðjón Guðjónsson,
œskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar.
TIL ÍSLENZKRA PRESTKVENNA
Dagana 29. júl! til 1. ágúst I974
verður haldið norrœnt prestkvenna
mót á íslandi. Fer það fram ! hátíða
sal Háskóla íslands og Norrœna hus^
inu ! Reykjavík. Undirbúningur er
á veg kominn og þáttaka erlen r
prestskvenna góð. *
Okkur þœtti mjög ánœgjulegt, a^
íslenskar prestkonur sœju sér fœrt
fjölmenna til mótsins.
Þátttaka óskast tilkynnt sem a
fyrst til Ingibjargar Þórðardóttu ,