Kirkjuritið - 01.09.1974, Qupperneq 40
DR. G. H. WOLFENBERGER
Endurheimt traust
Úr bókinni „Multiplying the Loaves“
Það var mjög undarlegt, hversu bók
Darvins „ Um uppruna tegundanna"
vakti mikla athygli við útkomu órið
1859. Darvin hafði sjálfur varlega
áœtlað sölu á 1250 eintökum, en
þau seldust svo að segja fyrsta dag-
inn. Bókin varð tákn mikilla og víð-
tœkra árekstra milli vísinda og trú-
ar, sem vœru óhugsandi nú á dög-
um a. m. k. með þeim hœtti, og ekki
er að fullu úrbœtt. Fjöldi fólks er enn
fastur í úreltum vandamálum.
Kirkjudeildirnar voru fœstar við-
búnar þessu áfalli. Margir trúmenn
settu augnablaka fyrir augun eins og
gömlu konurnar í teiknimyndinni: „Við
skulum vona að þetta sé ekki satt, en
ef það er satt þá þöggum við það nið-
ur." Á sama tíma reis stjarna œðri
gagnrýni hátt á himni, glœstari öllu
öðru í guðfrœðirannsóknum á þeirri
tíð.
Biblíufrœðingar athuguðu og rann-
sökuðu Heilaga Ritningu eftir reglum
og aðferðum, sem virtust grafa undan
meginstoðum kristinnar trúar.
Jafnframt þessu tóku vísindahug-
myndir Marx að ryðja sér til rúms,
bornar fram í ákafri samúð hans með
mönnum. Þessar hugmyndir fœldu
menn frá Guði án þess þó, að þa2r
gcefu nokkuð svar við augljósu órétt-
lœti. Þetta fœldi menn einnig frá trit'
rœkninni á þeirri forsendu, að hun
vœri fylgifiskur stéttaskiptingar. Þrátt
fyrir þetta var meirihluti hins kristna
heims eins og ölvaður af bjartsýn1
aldarinnar og hrifinn af styrkleika
Vesturlanda, sem ýtti undir mik'L
mennskukennd, og einkenndist Þ°
þetta tímabil af miklum kristniboðs-
áhuga.
Þá var það, að kirkjuklukkunum
var hringt. Þœr kunngjörðu stríð °9
jafnframt hið siðferðilega gjaldþrot
áranna 1914—18. Þá hvarf alHr
töfraljómi og álit fyrir blóðstorko-
Þá birtist hinn innri veikleiki Þ°sS
kristindóms, sem hafði látið un ,r
höfuð leggjast að lœra það að le'^
trausts hjá Jesú Kristi einum. En Þ°
var þessi tími þrenginga og rin9