Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1974, Page 66

Kirkjuritið - 01.09.1974, Page 66
tjáningarform innan veggja sinna. Allt hefur það nú, að meira eða minna leyti, kvatt kirkjuna, leiklistin fór út á götuna og varð upphafið að leik- húsum nútímans, myndlistin, danslist- in og að miklu leyti tónlistin hafa sömuleiðis farið sína leið. Eftir er hið talaða og sungna orð með sína tak- mörkuðu getu til boðunar og tjáning- ar. Endurnýjun prédikunarinnar er því liður í heildarsköpun kristinnar tiI- beiðslu, sem iðkuð er innan kirkjunn- ar. Sú endurnýjun hefur verið hœg- fara, hér á landi vonandi ekki skað- vœnlega hœgfara. Fyrst farið er að rœða um endurnýj- un innan kirkjunnar þá er ekki úr vegi að Ijúka þessum hugleiðingum undir austurhimninum með því að nefna það atriði, sem að mínu mati er þeim manni, sem starfar að prestskap ein- hver mesti fjötur um fót í starfi. Það eru frœðslu og útgáfumál kirkjunnar. Það eru í alla staði óviðunandi starfs- skilyrði að geta eigi bent fólki á nokk- urt frœðslurit eða uppbyggingarrit, engar ritningarskýringar fyrir almenn- ing. Sé það yfirstjórn kirkjunnar, sem er ábyrg fyrir þessu ástandi, þá vísa ég orðum mínum til hennar. Hið nið- urnídda ástand útgáfumálanna e( þeim mun ömurlegra þegar þess et gœtt, að okkar lútherska kirkja et orðsins kirkja, sem flytur Orðið með hinu talaða orði og höfðar til eyrans og, skynseminnar. Hvernig á bókar' lausri orðsins kirkju að verða veruleg0 ágengt meðal þessarar orðsins, hand- ritanna og bókanna þjóð? Útgáfumál eru meira mál en svo að einn og einn prestur geti tekið þau upp á sma arma, þau eru mál, sem kirkjan sem heild verður að skipuleggja og fram kvœma. Án verulegrar útgáfu getam við ekki vœnzt neinnar almennrar þekkingar á kristnum trúaratriðum °9 kristnum llfsskilningi. Vonandi verð ur þess ekki langt að bíða að eitthvö^ gerist í þessum málum, að ,,vatm hrœrist". 256

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.