Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.09.1974, Side 58

Kirkjuritið - 01.09.1974, Side 58
Situr hann í því kalli til dauðadags, 20. apríl 1829. íslenzk saga og norsk Gísli prestur var latínuskáld og orti meðal annars í tilefni af krýningu Karls Jóhanns, Svíakonungs. Munu nokkur kvœði hans hafa varðveizt prentuð. Ennfremur er kunnugt, að hann samdi ritling nokkurn, er hann nefndi: „Et Par Ord til Moderlandet Norge." Segir Hannes Þorsteinsson frá því neðanmáls í Guðfrœðingatali sínu, að ritlingur þessi hafi fjallað um þá helgu skyldu Norðmanna að veita brœðrum sínum, íslendingum, Grœn- lendingum og Fœreyingum, hlut í sömu réttindum og þeir höfðu sjálfir hlotið árið 1814. Ritlingur þessi var prentaður í Kristjaníu árið 1815, en höfundar var ekki getið. Komst hann þó aldrei í hendur almennings, því að landstjóri Noregs, Essen greifi, fékk höfundinn til að ónýta upplagið. Er líklegt talið, að landstjóri hafi óttast, að ritið kynni að hafa óœskileg áhrif á samningaviðrœður milli Norðmanna og Dana, er þá voru að hefjast að frumkvœði norska Stórþingsins. Var það ósk Stórþingsins, að Danir létu ísland, Fœreyjar og Grœnland af hendi til Norðmanna. Síra Gísli var kvœntur norskri konu, Charlotte Martine Barth að nafni. Var hún dóttir Barths kanseliráðs og sór- enskrifara í Rýfylki. Áttu þau að lík- indum fjögur börn, er upp komust. Jón sýslumaður Jakobsson kom því til leiðar, að síra Gísli tók arf eftir hann með öðrum börnum hans. Er trúlegt, að síra Gísli hafi haft nokkur tengsl við œttmenn sína á íslandi- Jón, bróðir hans, getur hans nokkrum sinnum í Árbókum sínum, og er þar einna gleggst frá honum sagt með svofelldum orðum: „GIsli prestur Jónsson, sýslumanns Jakobssonar og Rósu, var á Eystrd- Mólandi i Noregi. Hann var þá gam- a11, og hafði fengið áfall mikið og bilazt af, og svo af iktsýki, er þar lagðist að, svo hann fékk ei framið embœttisverk nema sitjandi, og hugð' af að láta. Hafði hann verið alvöru- maður mikill og athafnamaður °9 bœtt mjög prestakall sitt. Voru þar í tvœr þúsundir altarisgöngumanna og níu barnaskólar. Bœði var hann vinfastur og hugkvœmur og hinn skörulegasti að sjá. Hann átti börn mörg: Georg Daníel Barth, son hans( var ingenieurlieutenant í Kristíaníu a9 kvœntur. Hans synir voru Gísli Kristján og Jakob Espólín. Dœtur Gísla prests voru Jóhanna Severina, er átti Ellin9 Hansson og börn. Önnur Karen Sib- ylla." Þegar Gísli Jónsson hvarf héðan a^ landi, fóru Móðuharðindin að gar^' og þarf þeim ekki að lýsa. Öldin v°r áður nógu hörð orðin. í Höfn v°rU ýmsir íslendingar honum samtíða, serr| þá voru merkir eða urðu siðar. þá skildi hann leiðir og sneri e^| heim. Sagt er, að móðurœtt hans me9' rekja til Gísla Jónssonar, Skálho^5 biskups, en ekki kann ég það í Hitt er og öllu merkilegra, ef satt er; sem sumir hafa talið, að honum boðinn biskupsstóll á Hólum arl 1799, en hann ekki þegið. Trúiegt er' að saga hinna fornu biskupsst0 la 248

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.