Kirkjuritið - 01.06.1976, Page 5
I GÁTTUM
það mun vart fá dulizt glöggum lesendum Kirkjurits, að störf
°9 stefna Alkirkjuráðsins eru hugleikin ýmsum hér á landi
sem víðar. Ekki mun það þess vegna einungis, að gleggri
fregnir berast nú hingað frá ráðinu en löngum áður. Hitt mun
valda, að harðnandi átök eru um stefnu í stjórn, nefndum og
a þingum.
^ngin ástæða er til þess, að íslenzkt kirkjufólk gangi þessa
dulið. Hreinskilni og drengilegar rökræður um ágreining hafa
aidrei orðið kristninni til tjóns. ,,Sannleikurinn“, sá eini, gerir
^nenn ávallt frjálsa, en hneppir ekki í fjötra. Því er hollt og
hauðsynlegt, að umræður vekist um hvað eina, er kristna
hienn varðar. Þögn um ágreining er ekki eining, heldur
Þumbaraháttur, og friðarpostular, sem breiða vilja yfir skoð-
anamun og átök undir því yfirskyni, að þeir beri eining kirkj-
Unnar fyrir brjósti, eru tíðast úlfar í sauðargærum, hættulegri
en þeir herskáu. Hér er því hvatt til umræðu.
G. Ól. Ól.
83