Kirkjuritið - 01.06.1976, Qupperneq 21
' smíðum, enda allmikið átak fyrir söfn-
uðinn að koma henni upp.
Kirkjan að Reykjum í Skagafirði var
tskin í notkun að nýju á uppstigningar-
da9 eftir mjög gagngera viðgerð.
Vígslubiskup, sr. Pétur Sigurgeirsson,
framdi biskupsembætti við það tæki-
faeri.
Biblíufélagið
^ið íslenzka Biblíufélag varð 160 ára
júlí. Afmælisins var minnzt að
Kvöldi afmælisdagsins með stjórnar-
fundi. Einnig fór fram kynning á fé-
la9inu í útvarpi í tilefni afmælisins og
annaðist framkvæmdastjóri félagsins,
ffermann Þorsteinsson, um hana. Á af-
^lisfundinum var samþykkt að ganga
ra samningi um nýja prentun Biblí-
Unnar í minna brotinu, en ísl. Biblían
6r nú prentuð og bundin í útgáfumið-
®föð Sameinuðu Biblíufélaganna í
futtgart. Hafa þau viðskipti verið hag-
®f®ð og auk þess gert það fært að
afa Bib|íuna mun betur búna en kost-
j 1
Var á hérlendis. Þá var á sama
a rnaelisfundi tekin ákvörðun um að
tj|99ja fram nær eina milljón króna
J biblíudreifingar í heiminum. Þetta
ar hugsað sem þakkarfórn í tilefni
^ntaelisins og ákvörðunin gerð í
fé^USt' ^ess’ a® fjáröflunarviðleitni
a9sins á biblíudaginn og ella fengi
ar undirtektir hjá prestum og söfn-
hvUlTl ,lands'ns. Það er yður kunnugt,
e mikið vantar á það, að fullnægt sé
ÞráuPUrn eft'r Bidlfunn' ' heiminum,
bibr fyr'r risavaxi® sfarf a vegum
'ufélaga og kristniboðs. Ótaldar
milljónir einstaklinga og fjölmargar
þjóðir eiga ekki Biblíuna né neina
hluta hennar á sinni tungu, né heldur
hafa þeir efni á að eignast hana,
þótt til sé. Þegar Hið ísl. Biblíufélag
var stofnað kom hvatinn til þess utan
frá og erlendir bræður studdu það á
legg. Lengi nutum vér aðstoðar ann-
arra í útgáfumálum og hefðum ekki án
þeirrar aðstoðar getað séð þjóðinni
fyrir Guðs orði á viðhlítandi hátt. Vér
erum í skuld um þetta og þó enn
framar um hitt að hafa átt hið helga
orð á vorri tungu um aldir. Enn má
svo minnast þess, að svo skuli hafa
skipazt um hagi vora, þjóðar, sem
lengstum var ein hin fátækasta í heimi,
að nú eru almenn auraráð og lífskjör
ein hin beztu í heimi. Allt þetta minnir
á þá skyldu að stuðla að því að snauð-
ir bræður megi komast í kynni við
Heilaga ritningu. Ég bið presta og alla
kristna menn í landinu að leggja sig
enn betur fram um að styðja og efla
Hið ísl. Biblíufélag, svo að það megi
í þessu sem öðru gegna sínu lífsbrýna
hlutverki.
Dagana 7.—12. ágúst var haldinn í
Skálholti starfsmannafundur eða
svæðisráðstefna Biblíufélaganna á
Norðurlöndum. Slíkar svæðisráðstefn-
ur á vegum Sameinuðu Biblíufélag-
anna eru nýlega til komnar og hefur
engin slík verið haldin hér á landi
áður. Það var góð afmælisgjöf handa
Hinu ísl. Biblíufélagi að fá að vera
gestgjafi þessarar ráðstefnu.
Aðalframkvæmdastjóri Hins brezka
og erl. Biblíufélags, dr. Neville Cryer,
heimsótti oss í september og sat
fund með stjórninni.
99