Kirkjuritið - 01.06.1976, Page 48

Kirkjuritið - 01.06.1976, Page 48
tíu árum eftir að Páll skrifaði fyrri pistilinn til Korintumanna, en í hon- um fjallar hann um tungutalið eins og það var iðkað í Korintusöfnuði (12.— 14. kap.). Vera má, að ástæðan fyrir því, að Lúkas lagði svo ríka áherslu á það að greina skýrt og skilmerkilega frá því, hvað tungutal væri, hafi einmitt verið það, sem gerðist í Korintu, er Páll varð að leiðrétta ranga stefnu safnaðarins þar. Fornafnið annar, sem Lúkas notar í frásögninni, skýrir sig sjálft: ,,Og þeir urðu allir fullir af Heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og Andinn gaf þeim að mæla“ (4. vers). Lúkas talar reyndar aðeins einu sinni í þessum kafla um ,,að tala öðrum tungum“ (glossais 4. vers). i 6. og 8. versi notar hann ann- að orð, dialektos (þjóðtunga) í stað glossais (tungumál) til að gefa til kynna, að um sérstakar þjóðtungur hafi verið að ræða (sbr. Post. 1, 19; 21, 40; 22, 2; 26, 4). Sextán tungu- málasvæði eru nefnd í 9. og 10. versi, og fólkið af þessum svæðum sagði: ,,Vér heyrum þá tala á vorum tung- um“ (11. vers). Þetta vakti undrun þeirra og þeir sögðu: „Og hvernig heyrum vér, hver og einn, talað á eigin tungu vorri (dialektos, 6.—8. vers). Hér er ekki um að ræða óþekkt tungumál, heldur er þess sérstaklega getið, að tungumálin, sem lærisvein- arnir töluðu, hafi verið lifandi, töluð mál. Kraftaverkið, sem gerðist á hvíta- sunnunni, var það, að Guð veitti læri- sveinunum hæfileika til að tala mál, sem voru þeim áður óþekkt. Þeir, sem á hlýddu, voru af ýmsu þjóðerni, en gátu samt skilið hver á sinni tungu. Post. 10, 46 Þriðju frásögnina um tungutalið er að finna í sambandi við afturhvarf Kornelíusar, hundraðshöfðingja í róm- verska hernum. „Meðan Pétur var enn að mæla þessi orð, féll Heilagur andi yfir alla þá, er orðið heyrðu og hinir trúuðu, sem umskornir voru, urðu forviða, — allir þeir, sem komið höfðu með Pétri —, að gjöf Heilags anda skyldi einnig vera úthellt yfir heið- ingjana, því að þeir heyrðu þá tala tungum og mikla Guð.“ Augljóst er, að málið, sem hér er um getið, var ekki óskilmerkilegt, Þar sem Páll og félagar hans „heyrðu þá mikla Guð.“ I Post. 11,15 segir Pétur: „Heilagur andi (féll) yfir Þa’ eins og yfir oss í upphafi." Hér ber Pétur saman reynslu Kornelíusar og það, sem gerðist í Jerúsalem á hvíta- sunnunni. Á hvítasunnuhátíðinni veitti Guð tungutalsgáfuna til þess að hægt værl að boða fagnaðarerindið trúuðum Gyðingum af mörgum þjóðarbrotunri' Þeir höfðu safnast saman í Jerúsalea1 til að dýrka Drottin Guð. Sú stað- reynd, að Kornelíus og fjölskylda *al' aði tungum, var Pétri og söfnuðinum I Jerúsalem tákn þess, „að Guð fer ekki í manngreinarálit, heldur er hon- um þóknanlegur í hverri þjóð sá, er hann óttast og stundar réttlæti“ (Post’ 10,35). Guð notaði aftur tungutals' gáfuna, — sömu gáfuna og veitt var lærisveinunum í upphafi, sem tákn r' að sannfæra Pétur og söfnuðinn. Me, samanburði við það, sem gerðist a hvítasunnunni, komust þeir eðlilega a þessari niðurstöðu: „Ef Guð hefir 126

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.