Kirkjuritið - 01.06.1976, Síða 70

Kirkjuritið - 01.06.1976, Síða 70
Sú fræðilega lífsstefna, sem sigraði á Bretlandseyjum, var efnishyggjan. Hún benti á hinar ytri framfarir og gat útskýrt alla hluti með skýrskotun til efnislegra raka. Trúarbrögðin sem heild, sömuleiðis tilraunir hughyggju- heimspeki til að rökstyðja gildi and- legs raunveruleika, voru fljótafgreidd sem hindurvitni, andstæð framförum. Nokkur hópur vlsindamanna á Bret- landi gat ekki sætt sig við hinn efnis- lega raunveruleika sem hinztu rök allra hluta. Þessir menn voru fremur hugvísindamenn en raunvísindamenn og spurðu sjálfa sig þeirrar spurning- ar, hvort ekki væri unnt að andæfa kröfu efnishyggjunnar á einhvern hátt, er meir væri sannfærandi en tilraunir hughyggjuheimspekinnar eða opinber- unarkrafa trúarbragða. Lausnina fengu þeir í því að taka að beita vísindaleg- um rannsóknum tiltekin fyrirbæri, er bentu til þess, að maðurinn og tilvera hans væri ekki einvörðungu sú vél, sem efnishyggjan vildi vera láta, held- ur flóknara fyrirbæri. Þessi fyrirbæri gat engin vísindatilgáta né heldur heimsmynd efnishyggjunnar útskýrt, og var á það bent, að þau væri að finna í þeirri starfsemi, sem stunduð væri af spiritistum og skyldum hreyf- ingum. Þessi hópur vísindamanna stofnaði árið 1882 Brezka sálarrannsóknafélag- ið — Society for Psychical Research — og undir forystu þess var hafizt handa um rannsóknir hinna dularfullu eða yfirskilvitlegu fyrirbæra. Samkvæmt eigin forsendum tóku menn þessir töluverða áhættu í upp- hafi. Þeir vildu reyna að leiða í Ijós raungildi þeirra verðmæta, er þeir töldu, að fólgin væru í ákveðnum þátt- um trúararfsins, með aðferðum, er ein- ar voru teknar gildar í hugarheimi ráð- andi menningarvitundar, reynsluathug- unum. Þeir gátu hins vegar átt von á því, að athuganirnar leiddu ekki annað í Ijós en að efnishyggjan hefði rétt fyrir sér, og að maður framtíðarinnar yrði að sætta sig við það að vera vél, er gengi takmarkaðan tíma í heimi, sem væri ekki annað en vél. En strax og rannsóknirnar hófust virtist óþarft að ala á nokkrum ótta um það, að slík áhætta hefði verið tekin. Upphafsrannsóknirnar virtust gefa til- efni til þó nokkurrar bjartsýni um, að hægt yrði að hnekkja kröfu efnishyggj' unnar og það með þeim aðferðum, sem hún tók einar gildar. Þær niður- stöður, sem upphafsrannsóknirnar leiddu í Ijós, bentu til þess, að hand- an við, en samt í nánum tengslum við hinn efnislega heim væri andlegut heimur, sem maðurinn væri tengdur með sinni ódauðlegu sál. Tilraunii’ virtust leiða í Ijós, að sálin lifði af líkamsdauðann og gæti gert lifandi mönnum skiljanlega tilveru sína með því að koma fram í gegnum miðla' Þegar 20. öldin heilsaði, gerðu sálai'- rannsóknamenn sér góðar vonir um það, að innan tiltölulega skamms tíma væri hægt að hnekkja heimsmynd efnishyggjunnar, leiða rök að fram- haldslífi hvers einstaklings og þar með rökstyðja gildi hinnar trúarlegu víddar. Upphafsbjartsýnin hlaut þó dofna. Skeið hinnar hugmyndafraeði' legu efnishyggju rann út fyrir fram' farir í eðlisfræði, er hnekktu hinni vél- rænu heimsmynd stærðfræði og nátt' úrufræði 19. aldar. Að því leyti var 148
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.