Kirkjuritið - 01.12.1976, Qupperneq 43
Þá hóf hann máls um atburðinn 20.
ágúst 1938. Og hann sagði m. a.: ,,Er
Það ekki undarlegt, að þarna niðri í
íljótinu var það ein hugsun, sem gagn-
'ók mig, þessi: Nú fæ ég að sjá Guð. —
Ekkert annað komst að. Og þó vissi ég,
að konan mín og tvær dætur mínar
yoru í aftursætinu“.
^að snerti mig, hvaða hugsun lá að
óaki þessara orða, og ég svaraði: Jú,
Það er vissulega mjög merkilegt. Mér
Þótti þessi reynsla mannsins á slíkri
stund vera opinberun þess sannleika,
sem oft er oss hulinn, hve máttug og
sönn Guðs fyrirheit eru. — Þegar allt
annað hrynur og hvergi er hjálp að fá
eða nokkurt skjól í þessum heimi, þá
stendur fyrirheit Guðs eitt eftir sem
hinn sanni veruleiki. — Sælir eru
hjartahreinir, því að þeir munu Guð
sjá.
Blessuð sé minning hjónanna séra
Sigurbjörns Á. Gíslasonar og frú Guð-
rúnar Lárusdóttur.
Synóduserindi flutt i Ríkisútvarpi
22. júni 1976.
Kynnisferð til Ameríku
Næsta haust gefst íslenzkum presti kostur á að fara til Bandaríkjanna
til kynnis- og námsdvalar. Er hér með auglýst eftir umsóknum um
styrk, sem veittur verður og nemur $800.00, sem er safnað af Kiwanis-
klúbbnum Brú á Keflavíkurflugvelli, en auk þess hefur verið fengið
loforð hjá söfnuði í Minnesota rétt fyrir norðan Minneapolis að taka
í móti prestinum og veita honum aðstoð, bæði beint og óbeint.
Styrkurinri er hugsaður fyrir prest (og mjög gjarnan eiginkonu hans),
sem starfar í þéttbýlissöfnuði og hefur sérstakan áhuga á starfi fyrir
vangefna. Er aðalhvatamaður að þessu herpresturinn Paul Lionberger,
sem er mörgum að góðu kunnur fyrir áhuga sinn á íslenzku kirkjulíii
og löngun sína til að verða að liði á því sviði.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður, en umsóknarfrestur er til 15.
júní n. k.
Ólafur Skúlason
Hlíðargerði 17, Reykjavík
281