Kirkjuritið - 01.12.1976, Side 48
kirkja. Markmið guðfræðideilda er það
eitt að búa menn undir prestsþjónustu
innan þeirrar sömu kirkju. Þetta
stefnumark mótaði allar athafnir pró-
fessors Jóhanns sem kennara við guð-
fræðideild Háskóla íslands. Þótt hon-
um væru margir hlutir hugleiknir, hygg
ég kennimannleg guðfræði hafi verið
kærasta viðfangsefnið. Þar verður eft-
irminnilegust leiðsögn hans í helgi-
dóminum. Honum var það fyllilega
Ijóst, að veigamesti þátturinn í þjálfun
verðandi presta er tilbeiðslan sjálf,
dagleg iðkun guðrækninnar. Á þeim
vettvangi, þar sem himinn og jörð
verða eitt í heilagri messu, var
atbeini prófessors Jóhanns Ijúfur og
heill. Samvinna hans og doktors
Róberts Abrahams Ottósonar gerði
það að verkum, að helgihald í Há-
skólakapellunni varð dýrmætasta
reynsla námsáranna, drýgsta vega-
nestið. Þegar litið er um öxl til þess-
arar þjónustu, leitar gullinn tregi á hug-
ann. En ofar treganum vakir meðvit-
undin um það að hafa iifað stundir
algjörlega fölskvalausrar hamingju,
sem engin ránshönd fær burtu svipt.
Prófessor Jóhann er allur. Harmur
er kveðinn að eftirlifandi eiginkonu
hans, börnum þeirra hjóna og öðrum
venzlamönnum. Hugheila samúð votta
ég þeim öllum. Þau eru ekki ein um
sorg sína. Margur mun minnast pró-
fessors Jóhanns hvenær sem góðs
manns er getið.
Hitt er að nefna við leiðarlok: Jó'
hann Hannesson er genginn á fund
þess Drottins og frelsara, sem hann
ævilangt þjónaði af öllu hjarta sínu og
af allri sálu sinni og af öllum mæ*1'
sínum og af öllum huga sínum. Lokið
er áratuga baráttu á erlendri grundu.
Lokið einnig farsælli vegsögn í hóp>
æskumanna íslenzkrar kirkju. Lokið
hverju vinarbragði hins hjartahlýí3
drengskaparmanns. En lofgjörð sú,
sem Jóhann Hannesson flutti Kristi
Jesú í hópi trúbræðra meðan hann
mátti mæla hér á jörðu, er ekki hljóðn-
uð. Við, sem eftir lifum, berum Þa^
ákall fram að okkar hluta. Hinir, sem
þegar hafa þvegið skikkjur sínar og
hvítfágað þær í blóði lambsins, syngj3
sama söng í helgidómi himnanna. Par
sem Kristur gengur fram, er lífið að'
eins eitt, þessa heims og annars. OQ
að lifa er að tilbiðja Krist.
I Ijósi þeirrar vissu bið ég þess, a®
ástvinir prófessors Jóhanns Hannes-
sonar megi brosa gegnum tár, —- einS
og hann sjálfur brosti forðum.
Heimir Steinsson.
286