Jörð - 01.12.1944, Síða 93
En nöfn þeirra manna, er áttu sæti í stjórn félagsins,
gefa dásamlegar upplýsingar um iiiö alþjóðlega innræti
vopnasmiða. Fyrst er að telja C. P. Ií. Schnéider, ásamt
vini iians, André Vicaire, annars aðalforstjóra Vickers
& Creusot. Þá er mágur iians, Arnaud de Saint-Sauveur.
Enrifremur tveir Sudeta-Þjóðverjar, Van Dutschnitz og
von Arthaher, og er vert að geta þess um hina tvo siðast-
nefndu, að þeir eru álitnir háfa veitt Hitler fjárhagslegt
brautargengi framar flestum öðrum í hinni pólitísku
valdabaráttu hans.
Með öðrum orðíun, þótl Frakkland, Tékkóslóvakia,
Þýzkaland og PóIIand stæðu stöðugt á vopnuðum verði
hvert gagnvart öðru, þá hittust úlfur og lamb í ljúfum
leik, þegar þessir þýzku. frönsku, tékknesku og pólsku
herrar seltusl við sama horð, til þess að ræða möguleik-
ana á því, að auka markaðinn fyrir vörur sínar.
Því er nefnilega þannig varið, að vopnamiðirnir vinna
á alþjóðlegum grundvelli. Þeir eru það raunverulegasta
alþjóðasamhand, sem til er, og vinna saman eftir þess-
um tveimur meg'inreglum atvinnuvegarins: að lengja
stríðið, spilla friðnum. 1914—18 höfðu þeir stöðugt lip-
ur tök á þvi, að halda stríðinu í horfinu, og aðferðin var
í stuttu máli þessi: ef óvinurinn er að því kominn að
verða uppiskroppa af þeim hráefnum, sem hann þarf, til
þess að geta lialdið uppi baráttunni við þína eigin heri,
þá láltu hann fá af þeim birgðum, sem þú hefur meir
en nóg af.
Slik viðskipti voru í fullu fjöri allt striðið 1911—18, auð-
vitað alltaf með aðstoð hlutlausra milliliða, þar eð" hið
opinhera siðalögmál stríðsins verður þó að lialdast i heiðri
á yfirborðinu, jafnvel þótt það sé til óþæginda. Meðan á
stríðinu stóð, rann stöðugur straumur af glycerini, nikkel,
kopar, olíu og gúmmí frá enskum og frönskum verksmiðj-
um — til Þýzkalands. En Þýzkaland lét ekki standa upp
á sig. Það sendi Frakklandi járn og slál, magnetur i ben-
vínvélar o. s. frv. Þessi viðskipti gengu gegnum Svíþjóð,
Noreg, Danmörku, Sviss, Spán og Holland, með hinni
291
JORÐ