Syrpa - 01.01.1922, Síða 68

Syrpa - 01.01.1922, Síða 68
66 SYRPA voru það 20 fimm-hundruð-dala bankaseðlar amerískir, og utan um þá var vafið litlum bládropóttum vasaklút og bund- ið um með seglgarni, og innan í strönglinum var miði, og á honum þessi orð á ensku: “pessa 20 fimm-hundruð-dala seðla á Henry A. S. Trent, eða erfingjar hans. Árið 1869 átti nefndur Henry A. S. Trent heima í húsinu nr. 843 á Oak-stræti í borginni Brook- lyn í Bandaríkjunum. Eru peningar þessir gjöf frá bróður hans, William Trent að nafni, er var farmaður og dó á skip- inu Galahad á Hudsons-flóa, í ágústmánuði 1869, og bað hann mig (en eg heiti Hálfdan Arnórson Berg) að koma seðlunum til bróður síns. En litlu síðar fórst skipið Galahad , og komst eg hingað í haust aðfram kominn af ólæknandi sjúkdómi. Yeit eg að eg dey á þessum vetri, og gref eg því peninga þessa í jörðu af ástæðum, er eg mun taka fram í bréfi, sem eg ætla að skrifa á morgun til systur minnar, frú Kristínar konu Sigmundar Jóns Sturlusonar á Seyðisfirði á Austurlandi á íslandi. — H.A.B.” í krúsinni var bankabók Hálfdanar, og sýndi hún, að vorið 1869 átti hann á einum bankanum í New York tvö þúsund og sex hundruð dali. En nú voru seytján ár liðin síðan, og voru því vextir af því fé orðnir töluverð upphæð. Og í bankabókina var skrifað á ensku, að sá, er kæmi með hana til gjaldkera bankans, væri sannur erfingi Hálfdanar Arnórssonar Bergs. Og hafði hann skrifað nafn sitt undir það fullum stöfum. pá er við höfðum athugað þetta með mikilli gaumgæfni og dáðst að því, hversu vel og vandvirknislega að Hálfdan hafði gengið frá þessu öllu saman, þá lét Edna seðlana og bankabókina aftur í krúsina og rétti hana að Arnóri. Hann setti lokið yfir á ný og rétti að O’Brian og bað hann geyma fjársjóðinn og koma honum í Canada-peninga. Tók O’Brian brosandi við krúsinni og stakk henni í vasa sinn, og sagði að það væri sá stærsti sómi, sem sér hefði verið sýndur um dagana, að trúa sér, galgopanum, fyrir svo miklu fé. — Að því búnu veltum við aftur steininum inn í holuna undir hús- horninu, mokuðum moldinni þar að og gengum svo frá, að lítil ummerki sáust. Og vann herra Island mest að því. petta var verulegur hátíðisdagur fyrir okkur öll. Úti var fegurð og blíða, þó svona væri áliðið hausts, því að hið svonefnda Indíána-sumar var nýlega gengið í garð, og breiddi þá, eins og oftar, einhvern ósegjanlega unaðsríkan töfra- ljóma yfir sléttur og skóga, ár og vötn. Og þó Indíána- sumarið vari sjaldan lengur en hálfan mánuð, þá er það, og
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.