Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Síða 5

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Síða 5
Staksteinar. Þættir úr sögu Guómundar frá Nausti. (Niðurl.). Fyrir hádegi á sunnudaginn reri Guð- mundur með Línu inn í Víðihólma, sem lá kippkorn inn með landinu, andspænis fcænum á Sandi. Veður var gott og Lína lék við hvern sinn fingur. Guðmundur hjálpaði henni upp úr bátnum og var svo stimamjúkur sem framast mátti, en um leið svo hátíðlega alvarlegur, að hún var næstum því forviða. Hann gekk með henni um allan hólmann, sýndi henni fallegustu víðirunnana, æðarfuglahreiðr- in og klettaborgina, þar sem álfarnir áttu að búa. Lína varð hrifin af veðrinu, útsýninu og fegurð náttúrunnar og sett- ist niður frá sér numin undir einum runnanum. »Seztu hjá mér, góði; hér er svo inn- dælt.« Guðmundur settist við hliðina á henni. »Ó, hvað hér er inndælt! Eg er svo við- kvæm, að eg kemst við, þegar eg sé eitt- hvað verulega inndælt.« Guðmundur gat lítið sagt; viðkvæmni °g fegurðarsmekkur Línu var svo langt fyrir ofan hann, að hann komst þar ekki i námunda. Auk þess mundi hann í svip- lnn ekki eftir neinu inndælu hér á jörðu ^enia Línu sjálfri, en hann skorti einurð fil að segja henni það. »Hvaða klettur er þarna?« sagði hún °g benti út með landi. »Það er Dritskerið.« Hún lét augun reika inn með landinu, sneri sér að honum og benti inn eftir. N- Kv. XXIII. ár. 7.-9. h. »En þarna eru sker, — þarna«, og hún teygði sig svo langt, að hún misti jafn- vægið og varð að grípa í öxlina á hon- um til þess að velta ekki á grúfu. En þá snertingu þoldi hann ekki; hann varð stokkrjóður og fór að titra. Hún tók ekk- ert eftir því í fyrstu. »Fyrirgefðu, góði; eg var að detta. — Hvað sagðirðu að þessi sker hétu?« Hann dró andann eins og hann væri lafmóður, en svaraði engu. Þá leit hún framan í hann og sá að hann var allt öðruvísi en hann var vanur. Henni varð á að brosa til hans. Þá missti hann stjórnina á sér, greip um báðar hendur hennar og kreisti þær af afli, svo að hún rak upp hljóð af undrun og sársauka. »Góði, góði; slepptu mér! Hvað er þetta, Guðmundur?« Iíann sleppti tökunum allt í einu; svita- dropar stóðu á enni hans og hann titraði allur af geðshræringu. Lína stóð upp. Hún sagði ekki neitt, en dustaði nokkur visin lauf af kjólnum sín- um. Guðmundur leit til hennar bænaraug- um. Hún vatt til höfðinu. »Það er naumast!« sagði hún með þykkjusvip á vörunum, en glettni' í aug- um. »Mép þykir svo vænt um þig, Lína«. Það voru einu orðin, sem hann kom upp. »Það er nú hægt að sýna það öðruvísi 13

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.