Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Blaðsíða 27

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Blaðsíða 27
STAKSTEINAR 119 livarf af þeim slóðum. Guðrún gamla, ör- vasa kerlingin, hoppaði í sæti sínu og ~varð að orði: »Sá var nú fyrir sig, þegar hann var strákur«. Guðmundur sat hjá Jóni inni í litla húsinu og virti hann fyrir sér; hann kannaðist vel við svipinn undir skeggi og loðnum brúnum, en gráblá augun, sem áður leiftruðu af fjöri, voru nú orðin þunglyndisleg og starandi, kinnarnar blá- rauðar eftir barning hríðarinnar. »Þér á eg líf mitt að launa«, sagði Jón •«g horfði alvarlega á Guðmund. »Eg held öllu fremur honum Glóa og honum Grána«, svaraði Guðmundur, »því að ekki hefði eg komið auga á þig, ef .hundurinn hefði ekki haft veður af þér, •og ekki hefði eg getað komið þér heim, ef klárinn hefði ekki verið við hendina. — Hvernig stendur annars á ferðum þín- um?« »Það er nú komið svo fyrir mér, að eg . á eiginlega hvergi heima. Eg kem austan af Seyðisfirði og á að heita svo, að eg sé í bóksöluferð; — taskan er full af bók- um. Eg sé það nú, að það var mesta flónska af mér að leggja á heiðina í morgun, alókunnugur, eiga von á vondri færð, eins og líka reyndist og vera orðinn eins stirður til gangs og slitinn, eins og eg er, því að nú er munur á mér eða var, þegar við þekktumst á yngri árunum. Svo var það ætlunin að heimsækja syst- kini mín í Voginum og vera hjá þeim um hátíðina, hvað sem svo verður um mig«. Una kom inn á gólfið. »Ertu nú að hressast? Er nokkuð hægt að gera fyrir þig meira?« »Þú ert búin að blása lifandi anda í mig aftur, kona góð. Má eg taka í hend- ina á þér? Mér datt í hug erindi, þegar þú varst að lífga mig við; það er svona: Hitnar blóð og hýrnar önd, hér má þakkir vanda, þegar hjúkrar þýðleg hönd þreyttum vegfaranda«. Una nam vísuna og þótti mikið til koma. Skáld hafði hún aldrei hýst fyr! »Mér lízt svo á, að þú munir vera vel kvæntur«, mælti Jón, þegar Una var far- in. »Já, það er eg«, svaraði Guðmundur af sannfæringu. »Það er gleðilegt. — Ekki geta allir sagt það. Eg hef líka verið kvæntur, en ekki sótti eg neina hamingju í hjóna- bandið. Eg á konu, sem ekki vill við mig kannast og eg á tvö börn, sem aðeins í orði kannast við mig sem föður sinn«. Guðmundur horfði meðaumkunaraug- um á Jón. »Það er engin von á öðru en að þú sért forviða«, hélt Jón áfram; »en þú manst, hvernig eg var, og allt munu þetta vera sjálfskaparvíti. -— Að stökkva i ráðleysu að heiman, flækjast við sjómennsku og verzlun, fara á búnaðarskóla, síðan í siglingar og seinast í heilagt hjónaband — og hafa engan leiðtoga í því flangri nema sitt eigið óstöðuglyndi og svo Bakk- us, — það kann engri góðri lukku að stýra. Eg hef líka orðið að gjalda breysk- leikans í fullum mæli og nú kem eg til þín eins og aflóa hýðarjálkur, með synda- bagga heillar æfi á baki«. Jón hló með vörunum, en alvöruþung- inn talaði út úr augunum. »Vertu velkominn til mín, Jón«, svar- aði Guðmundur, »og eg vona að þú verð- ir hjá mér um jólin; það er ekki of löng hvíld eftir þessa erfiðu ferð«. »Þú segir vel um það, vinur, — og það er vandi vel boðnu að neita«. Þegar leið að háttatíma, bauð Guð- mundur góða nótt. Morguninn eftir var Jón dável hress og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.