Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Blaðsíða 9

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Blaðsíða 9
STAKSTEINAR 101 Lilju Rut, sem varð fyrst kvenna til að .yla Guðmundi í barmi. Sá kunningsskap- ur hafði endumýjast í bæði skiftin, sem Jón kom heim úr verinu, og í síðara skift- ið hafði hann tekið á sig svo ákveðna mynd, að Jón taldi hann skilyrðislausan inngang að öðru meira. Haustið, sem ■Guðmundur varð verst úti, kom Jón dag- lega í gistihúsið, gerði sér til erindis að fá sér eitt staup eða kaffibolla, og þá var ■ekkert til þess tekið, þótt hann hefði tal af heimasætunni um leið, svona eins og ■af tilviljun; og þótt ýmsum öðrum piltum yrði næsta tíðförult þangað í húsið, þá var Jón sannfærður um, að hann væri sá eini, sem ætti nokkur ítök í hylli heima- sætunnar. Svo bar það við skömmu eftir vetur- mæturnar, að einn af kunningjum Jóns, bókhaldari faktorsins, fékk sér drjúgum neðan í því tvo daga í röð. Síðari daginn lenti Jón í flangri með honum og varð líka töluvert hreifur. Þetta var á laugar- degi. Seint um kvöldið sátu þeir heima hjá bókhaldaranum, voru að staupa sig ■og rabba um ýmislegt. Eins og gengur -leiddist tal þeirra að heimasætunum þar í Voginum, þar á meðal að Lilju Rut. Talaði Jón um hana með allri virðingu og ‘taldi hana sannheiðvirða stúlku. Bókhald- arinn var svo ógætinn að efast um það, en af því að Jón var örgeðja, og hinn nokkuð ruglaður í kollinum, hvesti í þeim orð af orði, þar til er bókhaldarinn tók af skarið, barði í borðið og sagði: »Það hélt eg, Jón, að þú værir ekki sá •einfeldningur og svo fáfróður, að þú viss- ir ekki að hún hefur verið síðan í fyrra -að daðra við barnakennarann þarna fram frá, þenna spóafætta Möðruvelling, sem alltaf er að flækjast þar á hverri helgi, — °g það skal eg segja þér í trúnaði, að svo nærri kom eg vitunum á henni í gær- Lvöldi, að eg fann að hún hafði borðað lauk nýlega«. Þá funaði Jón upp og steytti hnefann. »Þú lýgur þessu eins og þú ert langur til! Eg skal sanna það að þetta er ósatt, og á eftir skaltu fá að kenna á því!« Svo stökk hann samstundis ofan í gistihúsið. Það fer meira en tvennum sögum um, hvað gerðist í gistihúsinu þetta kvöld; útgáfurnar urðu margar og ósamhljóða. Sú sagan, sem sennilegust þótti, var á þá leið, að Jón hefði ruðst rakleitt inn í svefnherbergi Lilju Rutar og þá hafði staðið svo óheppilega á, að barnakennar- inn hafði verið þar staddur; kveðjur hefðu orðið lítt vandaðar, allt lent í rifr- ildi, Lilja Rut þotið grátandi og hljóðandi niður til foreldra sinna og þau komið bæði á vettvang. Eftir það er Sveinbjörg kom til skjalanna, hefðu ónot og brigzl- yrði keyrt svo úr hófi, að ekki væri eftir hafandi, en að lokum hefði Þórarinn, með aðstoð hinna, rekið Jón út og læst húsinu. En hvað sem satt var í þessu, þá kom Jón heim seint um kvöldið, alveg viti sínu fjær af reiði og lét ekki sjá sig úti í marga daga. Jón svalaði sér á því að yrkja skamma- kvæði um gistihúsfjölskylduna og barna- kennarann. Kvæðið var, eins og búast mátti við, fram úr öllu lagi hroðyrt; má marka það nokkuð af fyrsta erindinu, sem hljóðaði svo: Hvar mundi finnast þýlyndari þjarkur en Þórarinn, í byggöum þessa lands? Og hvar í veröld sóðalegri svarkur en Sveinbjörg Helga, konugribban hans? Það yrði leit á léttúðugra trippi en Lilju Kut, sem kyssir þrjá í senn. Já, það er von að henni í kynið kippi, því kallast má sú rótin ein og þrenn. Svona var allt kvæðið, samanbarinn. skammabálkur, sem almenningur gleypti við og gerði sér mikinn mat úr. Kvæðið barst auðvitað fljótlega upp í gistihúsið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.