Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Qupperneq 41

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Qupperneq 41
SÍMON DAL 133 foid lávarður hefir auðsýnt mér mikinn Héiður, eins og þér vitið, en hann mundi •ekki standa mér í vegi hér«, mælti hún. »Nei, það er satt — hann gerir það ekki ---og heldur ekki í vegi fyrir hertogan- um!« hrópaði eg. »Eruð þér búnir að ljúka yður af, eða hafið þér meira að segja mér, sir?« spurði hún háðslega. — »Nei, madame, ekkert meira«, svaraði eg; ■og hún hélt leiðar sinnar all hnakkakert. »Það er alveg sama — þú skalt ekki lenda í neinu misjöfnu«, bætti eg við með sjálfum mér á meðan eg horfði á eftir lienni. Það leit út fyrir, að hana væri líka farið að dreyma vissa drauma. -— En ef eftirtekt þjóðhöfðingja var henni mikils 'virði, þá átti hún ennþá talsvert eftir — hertoginn af Monmouth þurfti bráðlega ■ ekki að vera hærra settur í hennar aug- um, en Símon Dal var nú. Næsta morgun kom hertogaynjan af Orléans frá Dunkirk. Konungurinn sigldi á móti henni og þau mættust úti á rúm- sjó. f fylgd með konungi voru York het- togi og fleiri frændur konungs, þar á meðal Monmouth, og þess vegna var eg líka með í þessari ferð. Hertogaynjan var ekki eins fögur og eg hafði gert mér í hugarlund, en þó mjög tíguleg kona. Eg skal játa það, að augu mín reyndu oftast að leita uppi fallegustu andlitin, þau dvöldu því ekki lengi hjá henni, en þess heldur hjá ungri stúlku, sem stóð í nánd við hana, hún var gædd alveg óvenjulegri fegurð, en var nokkuð barnaleg í útliti. Eg heyrði hertogaynjuna kynna hana fyrir konungi og öðrum frændum sínum, þegar hún var búin að heilsa þeim, sem Mademoiselle Louise Renée de Perren- court de Quérouaille (þetta nafn hefir síðar verið mikið stytt af alþýðu manna). Konungur kysti hana á hendina, og kvaðst vera mjög hamingjusamur, að fá -;að sjá hana — og það var víst alveg satt, ef dæma skal eftir tíma þeim sem hann eyddi í að horfa á hana. »Eru þetta allir, sem koma með yður, systir?« spurði hann. Hún svaraði nokk- uð hátt: »Já, allir að undanteknum einum aðalsmanni, sem á að koma til mín frá Calais á morgun með boð frá Frakkakon- ungi«. Eg heyrði ekki meira. En eg hafði tek- ið vandlega eftir öllum sem komu. Orðin je viens, þóttist eg geta skilið að gætu átt við hertogaynjuna, tu viens við konung vorn, en eg sá engan á meðal þeirra, sem þarna voru staddir, sem hefði þurft að senda sérstaka sendiboða á undan alla leið til Lundúna með boðin: il vient. Það hiaut þá að vera þessi herramaður, sem átti að koma frá Calais næsta dag; og eg gerði mig svo djarfan að spyrja einn hinna frönsku hirðmanna, sem ásamt frú sinni stóð á þilfarinu við hlið mína, hver þessi maður mundi vera. »Hann heitir M. de Perrencourt, og er náskyldur stúlk- unni, sem þér sáuð í fylgd með hertoga- ynjunni«, svaraði hann. Þetta voru mér vonbrigði. Ekki gat þessi M. de Perren- court verið slíkt stórmenni, að boðin il vient hefðu verið send á undan honum til Lundúna. — Eg stóð um hríð og studdi baki við sigluna, og virti hefðarfólkið fyrir mér. Monmouth gekk fram og aftur og leiddi hertogaynjuna. Mér fanst þau vera harla myndarleg, og óskaði með sjálfum mér, að þau nú hefðu eitthvað skemtilegra að ræða um en stríð við Hollendinga. Alt í einu varð eg þess var að þau stönzuðu og hertoginn benti í áttina til mín. Hún. horfði í sömu átt. Hann sagði eitthvað við hana og bæði hlógu. i sömu andránni komum við að lendingarstaðnum. Hún lagði hendina á arm hans eins og hún væri að biðja um eitthvað. Hann hló aft- ur og ypti öxlum; svo lyfti hann hendinni

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.