Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Side 51

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1930, Side 51
FRANS FRÁ ASSISI 143 ír, af því þeir gætu hvort-sem væri ekki stolið öðru en nokkrum eldiviðarbútum. En vott eða þurt, eða nokkurn hlut að skýla sér með í næturkuldanum, fengu þeir ekki. Ekki varð þeim félögum svefnsamt um nóttina og skjálfandi af kulda og glor- hungraðir fóru þeir um morguninn til næstu kirkju, strax þegar hringt var til óttusöngs. En þá vildi svo til að húsfreyj- an þaðan, sem þeir voru um nóttina var í kirkjunni líka og þegar hún sá bræðurn- ar biðja morgunbænir sínar með miklum fjálgleik, fór hún að hugsa sem svo, að ólíklegt væri að þeir væru þjófar og ræn- ingjar. Meðan hún var að hugsa um þetta, gekk alþektur efnamaður úr borginni inn í kirkjuna. Var hann vanur að koma þar á hverjum morgni og gefa fátækum ölm- usur. Fór hann í þetta skifti til Bern- hards og Egidio og ætlaði að rétta þeim ölmusu, en þeir vildu ekki taka við neinu. Þá spurði maðurinn undrandi: »Eruð þið þá ekki fátækir, eins og þið lítið út fyrir?« »Vissulega erum við fátækir«, svaraði Bernhard, »en fátæktin er okkur ekkert böl, því við höfum af frjálsum vilja og til þess að hlýða boðum Guðs gefið eignir okkar«. Síðan sagði Bernhard honum sögu þei'rra, að þeir hefðu verið ríkir menn, en gefið alt sitt til þess að geta áhyggjulaus- ir boðað fagnaðareiándi friðar og iðr- unar. Þegar hér var komið samræðunni, sem konan altaf hlustaði á, sá hún hve illa henni og manni hennar hafði farist við þá félaga kvöldið áður. Til þess nú að bæta úr því gekk hún til þeirra og sagði: »Kristnu menn, ef þið viljið snúa aft- ur til húss míns, þá eruð þið velkomnir undir þak mitt«. Bi-æðurnir þökkuðu henni kurteislega, en kusu heldur að fylgjast með hinum nýja vini þeirra, sem bauð þeim heim með sér og veitti þeim vel. Frans hafði sjálfur valið sér Rietidal- inn sem trúboðssvæði. Lýsir hann því á- takanlega í ritum sínum, hvað kirkjulíf alt og guðsótti hafi verið þar í niðurlæg- ingu, enda ganga þær sagnir þar enn meðal fólksins, að Frans hafi snúið íbú- unum þar frá heiðni til kristni. Upp í fjöllunum, 500 metrum yfir borg- inni Poggio Bustone, um 1000 metrum fyrir ofan sjávarmál, er hellir einn lítill. Þangað fór Frans oft til bænar, og lá þar tímunum saman á knébeð á nöktum klett- inum. Löngum eg kalla. Löngum eg kalla. Langt er upp til hjalla og fjalla. — Kona, eg ann þér. Er það ekki skrítið? Fíflana eg fann hér, nú færðu ofboð lítið. — Bara lítið — lítið. Þungt er að þreyja, þyngra samt að deyja og þegja. — Því Ijúft er að lifa, ljúft við þig að tala. ... nei, ekki að skrifa, aðeins við þig hjala. — Bara hjala — hjala. Margur má syrgja og meinin inni byrgja, ... já, syrgja. — Orð á ei mín tunga ástina að lofa. Ástin mín unga, — æ, lof mér að sofa. — Bara sofa — sofa. F. Á. B.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.