Nýjar kvöldvökur - 01.10.1934, Qupperneq 3

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1934, Qupperneq 3
ÁSGEIR UNGI. Ur smásögusafninu Yæring'jar, eftir einn þeirra. Norðaustanstorminn lægði . óðum, og dró dró skjótt úr verstu sjóunum. Hafið gekk þó enn í hvítum brotgörðum, eins langt og augað eygðii Himininn var úf- inn og kuldalegur. Sjóarnir voru nú ekki eins krappir og áður. Aðdragandinn varð æ lengri og bylgjufaldarnir lægri og ávalari. Þorratunglið var rétt komið að fyllingu, og degi var tekið að halla. »Gnúpa-Bárður« hélt í aust-suðaustur og stefndi í áttina til Hjaltlands. Hann hafði orðið að slá undan í ofviörinu síð- asta sólarhringinn. Nú hafði hann sjóinn á bakborðskinnung. Veltan var geysimik- il. Hvalbakurinn var öðruhvoru í kafi, en hnykkti sér svo upp úr aftur eins og hestur úr feni, svo sjóarnir klofnuðu um stefnið og féllu eins og brimhvítt tröll- fákafax á bæði borð. Allmikill straumur féll þó í foss aftur af hvalbaknum og niður á þilfarið. En samt var nú vel slarkfært milli stjórnpalls og háseta- klefanna, ef sætt var lagi. Síðasta sólar- hringinn hafði þetta verið með öllu ó- fært. »Gnúpa-Bárður« hafði þá verið meira neðansjávar en ofan. Hann hafði stungið sér í sjóana allt að framsiglu, svo að skrúfan kom upp úr öðru hvoru og þeyttist í lausu lofti með geysihraða, svo hrikti í öllu skipinu. Urðu þá skip- verjar að vera þar sem þeir voru komn- ir, og um nokkura matargerð var eigi að ræða annað en þurrmeti og kalt kaffi eða te. — Ásgeir ungi stakk höfðinu upp úr lyftingar-opinu og leit til veðurs. Hann var vel vaxinn piltur á að gizka átján ára, dökkur á brún og brá: Hann var N.-Kv. XXVII. ár. 10,—12. h. laglegur piltur og upplitsdjarfur, augun móbrún og fjörleg, og brá fyrir glettn- issvip í þeim. Hann leit í kringum sig og brosti. Það var auðséð, að hann dáð- ist að sjónum og þoldi hann vel. Ásgeir var í hvítri treyju, eins og mat- sveina er siður, enda vann hann fyrir farinu með því að ganga brytanum til handa. Hann var þaulvanur þessháttar störfum á gistihúsum heima og hafði þar fengið gott orð á sig víðsvegar um land fyrir dugnað sinn og lipurð og snyrtimennsku í allskonar frammistöðu. Nú var hann á leiðinni út í heiminn í fyrsta sinn. Til Noregs, Englands eða eitthvað út i buskann, eftir því sem for- sjónin og herskip Breta kynnu að leyfa. Ásgeir leit niður sttigann og kallaði glaðlega: »Halló, mister Schultze! Nú ættuð þér að koma upp og viðra yður! Veðrið er að verða »olræt«, og sjóinn lægir bráðum«. Gamall maður stakk upp höfðinu við hliðina á Ásgeiri. Hann var hvíthærður og rakaður, en hafði vangaskegg. Meðal- maður á hæð, en þrekinn. Augun voru gáfnaleg og skýr. Þó var sem einkenni- leg hula væri dregin yfir þau, og var sem inn í myrkur að líta. Þetta var samferðamaður Ásgeirs. Gamall útlendingur, sem í allmörg ár hafði haft aðsetur sitt í litlu þorpi á Vestfjörðum. Hann var fáskiftinn mað- ur og talinn einrænn, en dýra- og barna- vinur mikill og góðgerðasamur við fá- tæka. Enginn vissi ábyggilega hvers- lenzkur hann var. Austurrískur, þýzkur eða hollenzkur. Eftir að heimsstyrjöldin 19

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.