Nýjar kvöldvökur - 01.10.1934, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1934, Blaðsíða 29
ÚTI Á HAFI 171 þessa gleð henriar skyggði sorgarfregn- in imi ástand föður hennar, en það fann hún samt, að nú var byrjað nýtt líf fyr- ir henni. Tom var ekki farinn burt úr húsinu. Hann beið óþolinmóður þar til hann sá Vilhelm aftur. »Vilhelm«, sagði hann við hinn unga vin sinn, »ég hygg, að hér hafi hinn rétláti guð uppkveðið sinn hegningardóm; að lítilli stundu liðinni verður það hljóðbært um allan bæinn, að þú sért kominn heim, ætlarðu þá að gefa Kast tíma til að forða sér undan hegningunni ?« Vilhelm þagði, hann virt- ist vera á báðum áttum. »Mér finnst að Lessen ætti það skilið af þér, að hann væri ekki lengur grunaður um hin sví- virðilega glæp«, hélt Tom áfram. »Ég þékkti hann betur en þú, og ég er alveg viss um, að hann hefði ekki hikað við, að stofna lífi sínu í hættu þín vegna, því að hann var bezti drengur«. »Komdu, komdu!« sagði Vilhelm. Þeir skunduðu til lögreglustjórans. I fám orðum ákærði Vilhelm skipstjóra Kast fyrir morðtil- raun, og sú skipun var gefin út, að taka hann fastan. »Komdu með«, bað Tom, mig langar ti'í að sjá framan í manninn, þegar þú svona óvænt gengur fyrir bann. Hann hefir alla sina æfi verið harður og óvorkunnlátur við aðra, nú þykir mér gaman af að vita, hvort hann getur ekki titrað«. Þeir slógust í för með þeim lögreglu- þjónum, sem áttu að taka Kast fastan. Skipstjóri hafði keypt sér fallegt hús, sem va mjög vel sett í bænum. Fyi’ir framan það var stór og vel hirtur garð- Sá maður var öfundsverður, sem hér gat lifað í næði hin síðustu ár ævi sinnar. Lögregluþjónarnir, Vilhelm og Tom gengu inn í garðinn. Kast sat við opin glugga. Þegar hann heyrði að menn "nálguðust, leit hann upp, sat fáein sugnablik hreyfingarlaus, starði á Vil- helm og fölnaði upp. Hann strauk hend- inni um ennið, eins og hann vildi sann- færa sig um, að hann dreymdi ekki, síð- an spratt hann upp og hvarf frá glugg- anum. »Vilhelm, hann hefir þekkt þig, og ætlar að flýjacc Lögregluþjónarnir fóru að flýta sér heim að húsinu, en áð- ur en þeir voru komnir alveg að því, reið af skot inni í húsinu. óttaslegnir þustu þeir Vilhelm og Tom með lögreglu- þjónunum inn í húsið; í herbergi Kasts fundu þeir hann liggjandi dauðan á gólf- inu; hann hafði skotið sig rétt í hjartað og þannig gert enda á lífi sínu, sem hann hafðifyrirgertmeðglæpsínum. »Vilhelm«, sagði Tom, »hér getur þú séð, að hann hefir með þessu játað á sig glæpinn. Hann hefir ekki verið hikandi, og ég hygg, að þetta hafi verið hið hyggileg- asta, sem hann hefir nokkru sinni gert á ævinni«. Þessi atburður hafði fengið svo mikið á Vilhelm, að hann gat ekki svarað. Tom tók í hönd honum og leiddi hann burt. »Komdu, hér höfum við ekk- ert meira að gera«, sagði hann. »Hann hefur dæmt sig sjálfur og það er þér nóg. Og ég held líka, að svo hafi verið bezt sem fór. Ef frændi þinn lifir af, þá er það gott, að munnur skipstjóra sé lok- aður fyrir fullt og allt, því hann er þó faðir stúlkunnar þinnar. Reyndar veit ég, að menn muni slúðra ýmislegt urn þetta, en þeir þora ekki að segja opin- berlega það, sem þeir ekki geta sannað«. Vilhelm þrýsti hönd vinar síns, hann hafði einmitt hitt það rétta. Elten gamli lifði af slagið, en hann var algerlega máttlaus og mállaus. Hræðslan skein út úr honum, og bar vott um, að hið innra ástand hans væri ekki gott. Vilhelm kenndi í brjósti um hann og skýrði honum frá því, að skip- stjóri hefði skotið sig, áður en hann yrði tekinn fastur. Við þessa fregn varð hon- 22*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.