Nýjar kvöldvökur - 01.10.1934, Page 41

Nýjar kvöldvökur - 01.10.1934, Page 41
B ARN AVEIKIN 183 Loksins kom ökumaðurinn okkar frá 3ækninum með þau skilaboð, að hann lægi sjúkur. Konan mín leit á mig með augnaráði deyjandi manns, og sagði með •veikum málróm: »Þetta er hönd forsjónarinnar. Þetta er fyrirfram ákvarðað. Hann er ekki vanur að vera veikur. Aldrei! Við höfum ■ekki breytt eins og okkur bar, Marteinn. Það hefi ég líka alltaf sagt þér. Þarna sérðu afleiðingarnar. En barnið kemst aldrei til heilsu framar. Þú mátt þakka þínum sæla, Marteinn, ef þú ert þess full- viss að vera án saka, en ég get aldrei fyrirgefið mér mína sekt, aldrei fyrirgef- ið sjálfri mér«. Ég svaraði, án þess að ætla að særa hana, að mér fyndist ekki breytni okkar •hafa verið neitt sérlega vond. »Marteinn! Ætlar þú að kalla heiftai-- eld af himnum ofan, liegningu hins al- máttuga niður yfir saklaust barnið okk- ar«. Hún fór að hágráta. Eftir augna- blik sagði hún: »Læknirinn hlýtur að hafa sent meðul«. »Náttúrlega sendi hann meðul«, sagði ég, »ég hef ekki komizt að því að segja frá því fyrr. Þau eru hér«. »Fáðu mér þó meðulin, maður. Veiztu ekki að nú er hvert augnablikið dýrmætt. En til hvers er hann að láta níeðul, þegar hann veit að barnið er ólæknandi«. »Ég hélt að meðan líf væri, þá væri og nokkur von«. »Von, Marteinn! Þú veizt ekki frekar en hvítvoðungui' hvað þú ert að fara nieð. Það vildi ég að þú... Eins og ég er lifandi stendur hérna: »hvern klukku- tíma«. Eins og maður ætti ráð á heilii mannsæfi, til að bjarga blessuðu barn- hiu. Eina teskeið á klukkutíma fresti. Á klukkutíma fresti, eins og nógur sé tím- nnn. Marteinn, gefðu blessuðum aumingj- -anum eina matskeið, og vertu nú fljótur niaður«. »En góða. Ein matskeið getur kann- ske...« »Gerðu mig nú ekki alveg vitlausa. Æ, flýttu þér nú. Svona þá, yndislífið mitt, þetta eru vond meðul, ákaflega beisk, en þau eru góð handa litlu Pálínu, sæt og góð handa elsku Ijósinu mínu, svo að því batni. Svona nú hinmaríkisunginn minn, leggja sig nú upp við mömmu sína, upp við brjóst mömmunnar sinnar og sofna aftur. ó, Marteinn! Hún lifir ekki til fyrramáls, það er ég viss um Mar- teinn, hún verður að fá fulla matskeið á hálftíma fresti, og hún verður líka að fá Aconitum og Belladonna, það er áreiðan- legt. Sæktu það Marteinn. Nei, vertu kyrr, ég verð að fara. Þú hefir ekkert vit á þessu. Svo háttuðum við og létum barnsrúmið vera við rúmstokk konunnar minnar. Ég var orðinn þreyttur og í þann vegínn að sofna, þegar hún kallaði til mín: »Marteinn minn! Er hitaleiðarinn op- inn?« »Nei«. »Það grunaði mig. Blessaður opnaðu fljótt, það er orðið dauðkalt hérna inni«. Ég opnaði og lagði mig svo útaf aftur, en um næði var ekki að tala. »Getur þú ekki haft barnsrúmið þín megin, Marteinn? Þú ert nær hitanum«. Ég ýtti rúminu yfir um til mín, en flækt- ist í hvílutjöldunum, svo að barnið vakn- aði. Konan mín fór að svæfa það aftur, og á meðan blundaði ég ögn. Rétt á eftir heyrði ég í gegnum svefninn, að sagt var eins og í f jarska: »Marteinn! Ég þyrfti að fá gæsafeiti. Viltu ekki hringja í Maríu?« Hálfsofandi ráfaði ég fram fyrir og steig ofan á köttinn, svo að hann skrækti hástöfum, ætlaði ég því að reka fótinn dálítið fast í hann og biðja hann um að gera svo vel að þegja, en rak mig þá á stól í myrkrinu og meiddi mig.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.