Nýjar kvöldvökur - 01.07.1943, Page 63
N. Kv.
DULRÆNAR SÖGUR
143
mílu suður fyrir Kríuskerið, en næsti bátur
á eftir okkur var á hlið við áðurnefnt sker.
Svo voru tveir bátar heim undir Spidereyj-
unni, er óveðrið skall á, og komust aftur
heim í höfnina með naumindum.
Það var eins og stormurinn gæfi engan
fyrirvara. Þegar hann kom yfir, var á sömu
stundu kornið ólátaveður, svo að vatnið
í'auk; menn rifu niður seglin, því að engu
mátti muna, að um færi; beitiásar voru
bundnir niður, því að annars hefðu þeir
slegizt út í vatn. — Ekki varð ráðið við neitt;
varð því að hleypa undan veðri að austur-
ströndinni, þó að ekki væri álitlegt innan
um öll þau sker, er á þeirri leið eru á
tveggja mílna svæði til meginlandsins. Að
því kom líka, að bátur- okkar straukst við
eitt skerið; mátti sannarlega engu muna, að
þar yrðum við til, en bátinn sakaði þó ekki.
Komum við að meginlandinu um kl. 9 fyrir
hádegi. Svo kom nokkru seinna annar bát-
ur, er lenti skammt frá okkur. — Við urðum
þarna veðurtepptir þann dag, næstu nótt
og þar til um kl. 4 síðdegis næsta dag, að við
komumst til Spidereyjar, með fullrifuðum
seglum; vindur var þá orðinn sunnanstæð-
ur, svo að gott leiði var komið fyrir okkur.
Bátinn, sem lenti hjá okkur, hafði alda tek-
ið yfir eitt skerið; var hann því dálítið
skemmdur í botninn.
Sá bátur, er var á hlið við Kríuskerið, sein-
ast er við vissum.náðiekkiseglunumniður í
tíma, svo að veðrið sló honum á hliðina og
hvolfdi síðan. Mennirnir þrír komust allir
á kjöl, þó að vatnið skolaðist yfir þá. Þetta
sáu þeir á bátnum, er voru heimundir
Spider, en ekkert viðlit að bjarga í slíku
ofviðri. — Var nú sendur gufubátur, er
liafður var til að draga bátana í mótvindi,
þegar netja var vitjað, og flytja fiskinn til
Warrens Landing í veg fyrir milliferðabát-
inn. Kornst gufubáturinn með illan leik á
vettvang, rétt áður en bátinn fór að reka
inn í skerin. Tókst að ná þeim tveimur, er
á kjölnum voru, því að sá þriðji var áður
búinn að segja „good-bye“ og sleppa sér í
vatnið. Voru þessir tveir nrjög aðfram-
komnir þó að þeir hresstust furðu vel á
nokkrum dögum.
Þegar veður leyfði, var farið að reyna að
finna þann drukknaða, með því að slæða,
en sú tilraun vildi ekki heppnast. — Átta
dögum eftir slysið var hafin leit með fjörum
meginlandsins austur af Spider. Fundum
við líkið, er var skammt frá þeim stað, er
við tókum land óveðursdaginn; var það
byrjað að rotna og þar af leiðandi farið að
fljóta uppi, því að heitt er vatnið orðið í
júlí og ágúst. Var nú siglt með það til
Spider, en svo undarlega tókst til, að þá er
við komum að bryggjunni, var lent við
staurinn, þar sem ljósin sáust; þar var líkið
tekið af bátnum, komið í kælirúm og búið
um, svo að það yrði sent inn með næsta bát.
— Menn þeir, er voru á bátnum, sem fórst,
voru frá Fisher River við Winnipegvatn,
eða nálægu umhverfi þar.
Kvæðasafn Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi
er nýkomið út í þrem stórum bindum. Er útgáfan mjög vönduð. Það verð-
ur selt bæði heft, í rexínbandi, í bandi með skinnkyli og skinni á hornum
og í alskinni. — Menn geta fengið það keypt hjá bóksölum eða beint frá út-
gefanda, sem er
ÞORSTEINN M. JÓNSSON, Akureyri.