Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Side 16
2
FRÁ INGJALDI PRESTI JÓNSSYNI
N. Kv.
Auðs hjá lín lekk yndis-mók,
Amors pínan mjög var klók.
Rel'sing sína og raunir jók
Reykjalín, þá fram hjá tók.
Er hér meint til séra Jóns. En síðar í
sama Ijóðabréfi er þessi vísa, og mun þar
vikið að Ingjaldi presti, er Jrá mun hafa
haldið Reynistaðarklaustur, og þá samhér-
aðsmaður Hjálmars, — en þaðan kom
hann að Nesi.1)
Hans hefir hlýri á kvenmanns kvið
kosið dýran stundarfrið.
Sæmd mjög rýra situr við.
— Svona flýr út mannorðið.
Voru þeir engir vinir, Hjálmar og Jón
prestur. Höfðu orðið með þeim ýmsar
greinir, og jafnvel handalögmál. (Sbr. Bólu-
Hjálmars sögu, Eyrarb. 1911, 8.-9. kap.).
3. Frá smíðum Ingjaldar prests.
Ingjaldur prestur var ágæta-vel hagur,
sem áður er sagt. Lét hann reisa kirkju í
Nesi á þeim árum, er hann var þar, og vann
nokkuð að smíðinni sjálfur. En yfirsmiður
var ísfeld snikkari Eyjólfsson. Mælt var, að
ísfeld þætti lítil og fátækleg tilföng til
kirkjusmíðarinnar, og kirkjan yrði jrví
veigalítil. Á hann að hafa kveðið svo að
orði, að bygging sú væri, ,,eins og krækt
væri saman kattarrifjum".
Séra Ingjaldur smíðaði einkum innan í
kirkju þessa, svo sem milligerðina milli
J) Kvæntur var séra Ingjaldur, en ekki hefi eg
nafn konu hans. En hennar mun vera getið í
Prestaævum Daða Níelssonar og Sighvats Borg-
firðings, og næ eg nú ekki til þeirra rita. Börn
þeirra verða því heldur ekki talin hér, ef einhver
hafa verið. En talið er að séra Jakob Guðmunds-
son (á Sauðafelli frá 1868) hafi verið launsonur
sr. Ingjaldar. En hann var faðir Guðmundar Jak-
obssonar byggingameistara í Rvík, föður þeirra
hljóðfærasnillinganna, Þórarins Guðmundssonar
og Eggerts Gilfers. — Sjá Bólu-Hjálmarssögu bls.
19. — K. V.
kórs og framkirkju, er Jóhannes gamli
Guðmundsson (f. 1829, d. 1922), hrepp-
stjóri í Saltvík á Tjörnesi, síðar bóndi í
Fellsseli í Kinn, mundi vel eftir, útskorinni
og grænmálaðri. Einnig smíðaði Ingjaldur
prestur til kirkju þessarar ljósakrónu,
rennda úr birki, er hékk í Neskirkju lengi
liam eftir árum, eða fram undir aldamótin
1900, og man sá, er þetta ritar, vel eftir
henni.
Benedikt Þórarinsson (skálds og prests í
Múla 1804—1816), ritari Þórðar sýslu-
manns í Garði, fyrrnefnds, (síðar prestur í
Heydölum 1851—1856, og víðar eystra),
hafði og unnið eitthvað að kirkjusmíð þess-
ari með þeirn Ingjaldi presti. Var séra
Benedikt sá faðir Halldórs bónda á Skriðu-
klaustri. Hann dó í Heydölum 1856, 62
ára, eftir 35 embættisár.
4. Frá Helgu Gottskálksdóttur.
Svo bar til eitthvert sinn, þá er séra
Ingjaldur var í Nesi, að hann ferðaðist
norður í Öxarfjörð. Á heimleiðinni gisti
hann undir Fjöllum í Kelduhverfi. Þar bjó
þá Gottskálk hreppstjóri Pálsson, mikils
metinn maður, og góður bóndi. Gottskálk
átti fjölda barna: 9 eða 10 syni og 2 dætur.
Hét önnur dóttir hans Helga, og var mælt,
að hún hefði þjónað presti til sængur um
kvöldið. Lék mönnum grunur á, að upp
frá því hefði þau séra Ingjaldur og Helga
fellt hugi saman. — Að morgni hélt prestur
áfram ferð sinni inn yfir Reykjaheiði, og
segir ekki frekar af því.
En tveim dögum síðar, eða þrem bar svo
til á Fjöllum, að Helga bóndadóttir hvarf
skyndilega að heiman. Vissi enginn, hvað
af henni var orðið, og liðu svo nokkurir
dagar, að ekki spurðist til liennar. Fréttist
þó brátt innan yfir heiði, að Helga frá
Fjöllum hefði verið þar á ferðinni, og ætl-
að að Nesi. Létti hún og eigi ferð sinni,
fyrr en þangað kom, og dvaldist hún þar