Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 18

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 18
4 FRÁ INGJALDI PRESTI JÓNSSYNI N. Kv. Jóns „háleggs" á Syðrafjalli, en föðurbróðir Baldvins „skálda“ Jónssonar, er sumir hafa nefnt „Kvenna-Baldvin“, og dvaldi víða í Þingeyjarsýslu framan af ævi, en síðar vest- ur í Skagafirði. — Guðmundur var for- söngvari í Nes-kirkju, liagmæltur maður og skemmtinn. Þessa vísu kvað Guðmundur eitt sinn til séra Ingjaldar, og munu þeir þá hafa verið við skál: Þú ert prestur, það er verst. Þér var bezt að vera eins og ég a allan veg, ' en ekki tegund séra. Fleiri l jóð munu þeim hafa á milli farið, þótt nú séu gleymd. Þessi vísa er og eftir Guðmund á Fjalli, er mörgum hefir þótt vel kveðin: Þó að svelli um þanka stig þræla hvellur rómuT. innra hrellir ekki mig annarra fellidómur. Verner von Heidenstam: Sænskir höfðingjar. NOKKRAR SOGUR HANDA UNGUM OG GÖMLUM. FRIÐRIK ÁSMUNDSSON BREKKAN heíir endursagt á íslenzku. SKJ ALDMÆRIN. 1. í mánaskini. Þorgrímur hét bóndi auðugur. Hann var ríkastur bænda í Róslögum.1) Eitt kveld sat hann í skála sínum og ræddi við gesti sína. Blysin, sem voru úr kvóðuríkum furuvið. voru fest á veggina. Þau brunnu út og slokknuðu hvert eftir annað, eftir því sem á kveldið leið. — En máninn skein niður í gegnum Ijórann á þakinu og varpaði skærum og mildum bjarma yfir borðið og hásætið. Hin síðustu ár höfðu gerzt mikil tíðindi með Svíum og Gautum, og nú var rætt um afreksverk og ævintýri, því að gestirnir, sem sátu í skála bóndans, voru nýkomnir heim úr leiðangri. Skyndilega kom þræll hlaupandi inn í skálann. Hann hélt á hjálmi í báðum hönd- um fyrir framan sig, og er hann kom að borðinu frammi fyrii húsbóndanum, setti hann hjálminn þar. Þegar Þorgrímur bóndi leit niður í hjálminn, sá hann að í honum lá meybam nýfætt og baðaði út höndunum og fótun- um og grét. Þrællinn tók þá til máls og sagði: —Miklar jarðeignir átt þú, húsbóndi minn; en hver á að taka arf eftir þig og rækta hinar miklu lendur þínar? Hingað til hefir þú verið barnlaus, en nú á þessu J) Nú: Rosalgen, svo nefnist Upplandsströndin.

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.