Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Síða 25

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Síða 25
N. Kv. SÆNSKIR HÖFÐINGJAR — Gef ég yður alla Óðni! hrópaði Eirík- ur sigursæli og skaut spjóti sínu, og í sömu andrá þutu örvarnar af öllum bogastrengj- um í þéttri drífu. Þegar sandský mikið nálgaðist á vellin- um héldu þeir, Styrbjörn og víkingar hans, að þar færi riddaralið. Þeir feldu spjótin til þess að stöðva það og standast áhlaupið. En í stað ríðandi hermanna geystust út úr hinu gula mistri trylltir uxar og ótamdir hestar, sem voru bundnir saman margir í röð. Okin, sem þeir höfðu á hálsunum, voru al- sett hnífsblöðum, spjótsoddum og hvössum krókum. Öskur nautanna hlandaðist við vopnagnýinn og jörðin varð öll blóði drif- in.... Styrbjörn, sem minna óttaðist dauðann, en að menn hans skyldu flýja með skömm, rak merkisstöng sína fast niður í jörðina og varði merkið, þrátt fyrir að hann þegar var aðframkominn af sárum og þreytu. Þá sá hann allt í einu eins og glampa af mörgum blysum inni í hringiðu misturs- ins. Var það skjaldmeyjarflokkurinn, sem nú þeysti fram með blikandi spjótin á lofti. Þar fremsta þekkti hann þegar Hjálmdísi á ljósa hárinu, sem flaksaðist í vindinum. Hann kallaði til Iiennar og sagði, að hefði hún fylgt honum forðum, þegar hann bað hana um það, mundu þau nú hafa rið- ið samhliða til sala Óðins. — Hún svaraði, að enn gæti vel orðið úr þeirri samfvlgd, og að ekki væri óhugsandi, að hún yrði hon- um vinveittari þar, en hér hefði verið. — Bráðlega heyrðu þau þó ekki hvort til ann- ars. — Og Styrbjörn féll, þar sem hann stóð, mitt í örvadrífunni. Eiríkur sigursæli stóð enn á ltæðinni, þar sem hann hafði tekið sér stöðu um morgun- inn, og nú hafði hann son sinn, hinn unga Ólaf, við hönd sér. — Meðal hirðmannanna, sem voru með konunginum var íslending- urinn, Þorvaldur Hjaltason, sem skundaði upp á efsta topp hæðarinnar. Hann bar höfuðið hátt og augu hans leiftruðu. Og 11 liann, sem aldrei áður hafði getað ort, fékk nú stutta stund senda frá Óðni þá hrifn- ingu andans, sem skáldgáfan sprettur upp af. Hann hóf upp raust sína og kvað. Ei- ríkur konungur dró gullhring af hönd sér og gaf honum að 'launum. En augu Þor- valds sáu langt — og hann hélt áfram og flutti af mikilli snilld einasta kvæði, sem hann kvað á allri ævi sinni — hina miklu og voldugu drápu um orrustuna á Fyris- völlum. Kvæðið hljómaði út í dauðaþögnina, sem nú ríkti yfir vígvellinum. — Hrafnaflokk- arnir sýndu, hvar Valkyrjurnar nú leiddu hesta sína fram til þess að sækja hinar föllnu kempur og flytja þær til Óðins. — Að lokum komu meyjar Óðins þangað, sem bardaginn hafði verið harðastur og örfa- drífan mest, og þar staðnæmdust þær um stund í aðdáun. Þar lágu nú hinar tólf skjaldmeyjar hlið við hlið á jörðinni. Allar voru þær jafn fagrar í dauðanum. Ein af Valkyrjunum lyfti Hjálmdísi á hestinn fyrir frarnan sig og hleypti með hana yfir Bifröst, regnbogabrúna, að hlið- um himinsins. Hinn mikli hófadynur vakti Hjálmdísi eins og af svefni. Og þegar hún lauk upp augunum, sá hún fvrst Ijómann, yfir hinum skrautlegu salarkynnum Freyju, þá sá hún hina rauðleitu klettaborg, sem var bústaður Þórs, heyrði hún þaðan þrumur og reiðar- slög. — Og að lokum var henni lyft af hest- inum, og hún leidd inn í Valhöll. Veggirnir voru alþaktir hvössunt sjtjót- um og gylltum skjöldum. Og Einherjarnir reistu sig upp frá bekkjunum til að fagna sonum og frændum og göinlum vopna- bræðrum, sem fallið höfðu í orrustunni os: til þess að spyrja nýtt neðan af jörðinni. En lengst burtu sat gamall, einmana mað- ur, án þess að hreyfa sig, eða taka eftir neinu. Hann andvarpaði þungt og mælti við sjálfan sig: — Ég get ekki búizt við að fagna neinum 2*

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.