Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Side 27

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Side 27
N. Kv. DÆTUR FRUMSKÓGARINS 13 við runna og beið átek.ta. Hann hafði heyrt skrjáfa í liminu skammt frá. Fram úr skóginum kom nú hópur apacha- indíána. Tveir fóru fyrir og var annar þeirra búinn að hætti indíánahöfðingja. Á eftir þeim komu fjórir og báru líkbörur á milli sín. Lík gamals indíána var á börun- um. Ruben taldi sjö börur bornar þannig gegnum skógarrjóðrið. Innan stundar var fylkingin horfin út í skóginn. Ruben reis á fætur og hélt í humátt á eftir, en gætti þess vandlega að láta ekki til sín heyrast. Þannig hélt hann á eftir líkfylgdinni sex mílur vegar, unz skóginn þraut og fram undan lá dalverpi nokkurt. Klettaborgir og ásar luktu um þ- ð á alla vegu. Allstórt vatn var í miðjum dalnum og á bökkum þess var þorp pekoanna. Byggingarnar voru að- eins fátæklegir strákofar, Istrútmyndaðir. Autt svæði var í miðju þorpinu, þar voru ráðstefnur indíánanna að jafnaði haldnar. Kvekaranum tókst að fylgja líkfylgdinni eftir heim undir þorpið. Þegar hann ekki þorði lengur að veita þeim eftirför, leitaði hann fylgsnis bax við nokkur tré í dalbrún- inni. Gat hann þaðan fylgst vel með öllu, sem gerðist í þorpinu I dögun gekk líkfylgdin inn í þorpið. Indíánakonur, sem voru við vinnu sína á nálægum ökrum bórðu sér á brjóst og þustu síðan heim í þorpið, til þess að flytja vinum sínum og venslamönnum sorgartíð- indin. í þorpinu var uppi fótur og fit. Felmtri miklu hafði slegið á þorpsbúa við þessa síðustu atburði. Ruben skemmti sér vel við að horfa á uppþotið. F.n allt í einu sá hann hvar gamall indíáni kom skálmandi. Ru- ben þekkti hann samstundis. Það var Ma- kamsch, hinn iliræmdasti af öllum indíána- höfðingjum, og faðir Svarta-Fálka. Indíáninn virtist ekki verða kvekarans Var og hélt sniðhallt fram hjá fylgsni hans. En þá spratt Ruben á fætur. Indíáninn heyrði harkið og vatt. sér snöggt við. Hóf hann samstundis tomahawk-öxi sína á loft og réðist á móti kvekaranum „Hvíldu öxi þína, gamli Makamsch,“ mælti kvekarinn rólega á apaclia-máli. ,,Ég er Ruben úrasali og fer með friði. Ég hefi margoft gist bæ pekoanna og hefi auk held- ur vegabréf frá Svarta-Fálka, syni Ma- kamasch." „Sonur minn, Svarti-Fálki, hefir skorið upp herör gegn öllum hvítum mönnum. Vegabréf þitt er einskis virði og þú verður að deyja,“ svaraði Makamsch. „Þú virðist hafa nauman tíma, gamli maður. Hefir þú ekki hugleitt, að ég er þrisvar sinnum hraustari en þú?“ „Makamsch er gamall," svaraði höfðing- inn, „en hann er hraustur hermaður og vissulega skal hann taka líf hins hvíta manns.“ Og öldungurinn gerði sig líklegan til að keyra öxina í höfuð kvekarans, en hann bar af sér lagið með byssuskeftinu. Hönd indí- ánans hné máttlaus niður og öxin féll glymjandi til jarðar. Samtímis flaug Ru- ben á hann og varpaði honum til jarðar. Kosta ætlaði að koma húsbónda sínum til hjálpar, en hann bægði honum frá. „Fyrir mörgum árum síðan,“ hóf Ruben hvíslandi mál sitt, „réðist þú og menn þín- ir inn á heimili bónda nokkurs. Þið særð- uð hann hættulega, drápuð móðir hans, svívirtuð konu hans og drápuð hana síðan. Elzta son hans drápuð þið líka og tveim yngri börnum hans rænduð þið. Ekkert hefir síðan til þeirra spursr. Konurnar tvær hengduð þið naktar upp í tré, og skemmt- uð ykkur við að misþyrma þeim örendum. Þið svarðflettuð þá dauðu og bóndanum ætluðuð þið sömu örlög. Þið hugðuð hann dauðan. En þegar til átti að taka var hann horfinn. Hann komst undan við illan leik og síðan þessir hræðilegu atburðir gerðust, hefir það verið eina köllun hans í lífinu að ná hefndum. Margan dag hefnd-

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.