Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Side 31

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Side 31
N. Kv. DÆTUR FRUMSKÓGARINS 17 sinn og unnustu, varð hann frá sér num- inn af gleði. Vafði hann Skógarblóm örm- um og ætlaði aldrei að geta sleppt henni aftur. „Hvar er Jámhönd?" mælti Ruben, þeg- ar honum fannst nóg komið af ástarhótun- um. ,,Og hvað getur þú sagt mér um afdrif hacíendunnar?" „Járnhönd er fangi pekoanna og hací- endan á valdi þeirra. Ibúárnir Iiafa allir verið drepnir að tveim undanskildum," svaraði Nevado þungbúinn. „Hverjir eru það?“ spurði Ruben. „Börn don Rodriques eru bæði á lífi, en þau eru einnig fangar pekoanna." „Við verðum að gera allt, sem í okkar valdi stendur, til þess að frelsa þau öll,“ mælti Ruben. „Vissulega," svaraði Nevado. „Nokkur hluti Indíánanna er lagður af stað til Placer Barranko, til þess að ræna þar og rupla. Með þeim hóp er Don Jaime og Donna Dolores. Járnhandar er gætt af þeim, sem eftir urðu. Þeir héldu strax eftir fall hací- endunnar áleiðis til indíánaþorpsins." „Við verðum nú þegar að snúa við,“ mælti Rul)en. „Við megum engan tíma missa.“ „Hvar eigum við að skilja Skógarblóm eftir?“ spurði Nevado áhyggjufullur. „Eg fer með ykkur,“ mælti hún, „þar sem Nevado er, þar vill Skógarblóm vera. Eg vil ekki skilja við þig frarnar." Nevado leit spyrjandi til félaga síns. „Við lofum henni að fara með okkur,“ mælti hann. „Við finnum vissulega eitt- hvert fylgsni handa henni, þegar við nálg- umst indíánaþorpið.“ Síðan héldu þau áleiðis til indíánaþorps- ms, sömu leið og Ruben og Skógarblóm höfðu komið. Á leiðinni sagði Ruben frá því, hvernig honum tókst að ná Skógar- blómi úr klóm indíánanna . XXVIII. JÁRNHÖND OG CASATA HITTAST. Eins og áður er frá sagt, var Járnhönd fluttur til þorps pekoanna, eftir fall hací- endunnar. Þar sem hann nú lá í böndum, hafði hann nægan tírna til þess að hugsa ráð sitt. Útlitið var skuggalegt, því bar sízt að neita. Þó var fjarri því að hann léti hugfallast. Oft hafði hann komizt í hann krappan, og ávallt borið sigur af hólmi, yf- ir hverskonar örðugleikum. Hví skyldi hann ekki einnig nú reynast sinnar gæfu smiður? Trú hans á að sér tækist að sleppa frá böðlum sínum vár óbiluð. Honum var Ijóst, að honum bar einnig skylda til að frelsa Don Jaime og systur hans, sem Svarti- fálki hafði komið með til bækistöðva sinna, skömmu eftir að hann sjálfur var tekinn til fanga og fluttur þangað. Don Jaime lá í böndum aðeins skammt frá Járnhönd. Þeir höfðu tekið tal saman og Járnhönd gerði allt, sem hann gat til að telja kjarkinn í hinn unga mann. Ennfrem- ur sagði hann honum hvað á dagana hefði drifið síðustu vikurnar og frá því, er þeir Nevado hættu veiðurn sínum handan við Colorado og héldu í áttina til indíánaþorps- ins, í þeim tilgangi að ná Skógarblómi úr höndunr pekoanna. A leiðinni hefðu þeir hitt hinn dularfulla Ruben úrasala, er hafði fengið þá til að taka þátt í vörnum hacíend- unnar del Rodriques. Sjálfur lrefði hann skuldbundið sig til að færa þeim Skógar- blónr að launum. Járnhönd sagði hinunr unga manni einnig frá falli hacíendunnar, og hvernig leiðir þeirra Nevado skyldu. „Hvernig nrá það vera,“ mælti Don Jainre, er hlýtt hafði þegjandi á frásögn Járnhandar, „að Ruben úrasali lrafi beðið ykkur að koma hacíendunr i til bjargar. Þar hafa eflaust verið svik í tafli.“ „Af hverju heldur þú það? Þekkir þú þennan Ruben?“ 3

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.