Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Síða 35

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Síða 35
'N. Kv. DÆTUR FRUMSKÓGARINS 21 að ég hitti fljótlega vin minn, Nevado. Hann er áreiðanlega hér í nánd. Sjakala- öskrið kannaðist ég við. Á máli okkar Nevados þýðir það: Hjálpin er í nánd. Og svo varst það þú, litla Casata sem frelsaðir mig . Þú ert lífgjafi minn. Ég skal ekki gleyma því.“ Hann þrýsti lienni enn einu sinni að brjósti sínu og kyssti hana ástríðufullt. „Hver er þessi Nevado? Ung stúlka, sem með mér var í þorpi pekoanna, og kölluð var Skógarblóm, sagði mér frá unnusta sín- um, sem hét þessu nafni.“ „Já,“ mælti Járnhönd, „það er sami mað- urinn. Það er kynblendingur, sem ég er bú- inn að þekkja lengi. Hann er veiðifélagi minn og bezti vinur. En segðu mér hvernig Skógarblómi líður í þorpi indíánanna.“ „Hún er horfin þaðan," svaraði Casata raunamædd, „hún hvarf nóttina áður en þii varst fluttur til þorpsins. Enginn veit með hvaða hætti hún komst burtu. En ungur indíáni, sem stóð á verði niður við vatnið þessa nótt, fannst dauður um morguninn. Indíánarnir sögðu að Blóðsugan hefði ver- ið þar að verki. Kannske hún hafi einnig numið Skógarblóm á brott og grandað henni.“ „Ekki óttast ég það. Það mun vera sanni nær að Nevado, eða þó öllu fremur vinur okkar Ruben hafi verið valdur að hvarfi hennar. Og þá er hún í góðra manna hönd- um.“ Járnhönd og Casata héldu nú af stað lengra inn í frumskóginn. (Framhald). Steindór Steindórsson frá Hlöðum: Hugleiðingar um bækur. Svo virðist, sem íslendingar hafi verið Tókelskir og bókhneigðir allt frá því að þeir fyrst lærðu leturgerð og bóklestur. Glöggt vitni þess eru hin miklu ritstörf og bóka- gerð forfeðra vorra, sem orðið hafa hinn dýrasti arfur, er þeir létu niðjum sínum í té og seint verður fullþakkaður sem skyldi. Málshættir eins og „betra er berfættur en bókarlaus að vera eða blindur er bóklaus maður“, bera einnig því vitni, hversu mjög þjóðin hefir litið upp til bókanna og talið þær mikilsvirði. Prentöld hófst hér á íslandi furðu snemma, þegar á það er litið, hversu lítið var unnið hér að verklegum framkvæmd- um, og hve öll tækni var sein að berast til landsins. Allt fram á daga núlifandi manna hefir þó bókakostur í landinu verið af skornum skammti og einhæfur að efni. Öldum sam- an var lítið prentað annað en guðsorð og svonefndar uppbyggilegar bækur. Voru í því að vísu margar ágætis bækur en samt fór fjarri, að þær fullnægðu fróðleiksþrá þjóðarinnar. Það kom bezt í ljós annars veg- ar í því hverja feikna vinnu menn lögðu á sig til að eignazt handrit af fornritum og rímum og síðar erlendum þýðingum, en þó engu að síður hinu, með hverri áfergju al- þýða manna gleypti í sig þau rit, sem á markaðinn komu, þegar fjölbreytnin fór að aukast í bókaheiminum íslenzka. Allt var lesið og lesið vandlega. Menn létu sér ekki nægja að hlaupa í gegnum bækumar til

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.