Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 37

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 37
N. Kv. HUGLEIÐINGAR UM BÆKUR 23 En þótt hagirnir hafi breytst, er þó enn margt til þeirra manna, sem kunna að meta það ljós, sem lestur bóka færir þeim, jafn- vel þótt það sé ekki nema lítil týra. Þeim mönnum er bókin annað og miklu meira en stundargaman, sem hægt er að fleygja frá sér á sömu stundinni og hún var tekin. Og jafnvel þótt bókin sé í þeirra augum „slæm“, þá bera þeir engu að síður þá virð- ingu fyrir því starfi, sem til þess hefir farið að skapa hana, að þeir geta ekki fleygt henni í sorpið né troðið hana fótum. Þeim mönnum, sem svo er farið, er bókin „langra kvelda jólaeldur“, og þeir eru verðugir arf- takar þeirrar þjóðmenningar, sem aldrei gleymdi því, að í bókunum, verðmætum andans, átti þjóðin sína dýrustu fjársjóði. Ur akri þeirrar menningar var sprottin sú eljusemi, sem engu færi sleppti til að auðga anda sinn, og skapa tilbreytingu í hinn fá- tæklega hversdagsleika með lestri og bók- iðju. En kvæði Davíðs túlkar þó fremur öllu öðru skoðanir safnarans, bókaunnandans, sem ekki getur hugsað sér, að nokkurt letr- að blað lendi í glatkistuna. Ýmsum þykir að vísu lítt koma til þeirrar iðju, og svo mundi þeim fara, sem fleygja bókunum í eldinn að loknum lestri, ef þeim þykja þær ».slæmar“, en hvað mundi hafa orðið um ýmsa dýrgripi fornbókmennta vorra, ef ekki hefði notið við safnenda á öllum öld- um. Hverfum nú aftur að orðum H. K. L. Þau eru sem töluð úr hjarta hinna lífs- Þreyttu, nýjungagjörnu manna, sem alltaf leita út á við í brauk og braml. Það eru Þeir menn, sem leita sér hvíldar og sálubót- ar í kvikmyndahúsum eða við dynjandi »»jazzmúsik“. í þeirra augum er bókin og kyrrlát hugsun yfir efni hennar fjarstæða ein. Þeir spyrja sem svo: Hvers vegna eig- Unr vér að sitja yfir þykkum doðranti tím- unum saman, þegar vér getum fengið allt efni hans í myndum á skammri stundu og það meira að segja kryddað með hljómleik- um og alls konar fjörefnum? Þannig hugsa margir, og aldarandi nútímans stefnir þang- að hröðum skrefum, og á hin fullkomna tækni, sem nútímamenningin hefir skapað, drjúgan þátt í því. Greinar á þeim meiði eru kvikmyndir og útvarp. Hvort tveggja í raun og veru dásamleg afsprengi mannlegs anda, sem þó er vafasamt að séu jafnfull- komin menningarverðmæti og oft klingir í eyrum. Því verður ekki með rökum neit- að, að öll vélmenning nútímans stefnir meira að hópmyndun manna en þróun ein- staklingsins, og þar í liggur hætta hennar fólgin. Þar er ekki stefnt að þvi, að hver einstaklingur fái af eigin ramleik metið það, sem honum er boðið, kosið og hafnað eftir vild. Heldur verður hann að taka það, sem honum er rétt. Hann fær viðfangsefnið í hendur tilreitt af skoðun kvikmyndastjór- ans, eða mótað af stefnu ráðamanns út- varpsins, og svo hratt eru réttirnir fram- reiddir, að hann verður að gleypa allt eða þá hafna öllu. En þegar maður situr yfir bókinni gefst ætíð tími til að gagnrýna það, sem hún flytur. Það var talið, er prentlistin fannst og hún gerði hið ritaða orð almenningseign, að þá væri fundið hið hættulegasta áróðurstæki. Og víst er um það, að mörg hásæti liafa rið- að við áhlaup hins ritaða orðs, en þó er ólíkt farið áróðurstækni bókanna og útvarps og kvikmynda. Því verður ekki neitað, sem fyrr var á drepið, að bókin og lestur henn- ar krefst áreynslu nokkurrar, og einmitt vegna þess mun það vera, sem svo margir hafa gerzt fljótir til að varpa lienni fyrir borð, en gripið fegins hendi útvarp og kvik- mynd í hennar stað. En þau ágætu tæki hafa því miður í því umróti heimsins, sem nú stendur yfir, orðið ein áhrifamestu vopnin til að hneppa heilar þjóðir í spenni- treyju einstrengingslegra skoðana ráða- manna þeirra. Og nú er svo komið, að bók- in og hið prentaða orð er orðin ein helzta

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.