Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 38

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 38
24 HUGLEIÐINGAR UM BÆKUR N. Kv. máttarstoðin fyrir lýðræði og frjálsri hugs- un í hverju þjóðfélagi. Þótt bækur séu brenndar af einræðisherrum og prentfrelsi heft, þá tekur það iangan tíma að uppræta þær með öllu og meðan þær lifa eru einnig þær hugsjónir, sem bækurnar hafa flutt, geymdar. Og þeir menn, sem líta bækurnar þeim augum, að þær séu aðeins stundar- gaman, sem fleygja beri í eld að loknum lauslegum lestri, eru ósjálfrátt að gera sjálfa sig óhæfari til að vera Joegna hins lýðírjálsa þjóðíelags. Ég get vænt þess, að ýmsum þyki þetta vera fjarstæðukennt, en vér skulum athuga nánar gildi bóka og lestur yfirleitt. Ég ætla ekki að tala um þær bækur, sem að allra dómi geta talizt einskis virði, sem ég raun- ar býst við að séu harla fáar. Heldur geri ég ráð fyrir, að bókin flytji einhverja hugsun, sem lesandanum má að gagni koma, ef hann einungis vill leggja á sig það erfiði að leita hennar. Máltækið „blindur er bóklaus maður“, er sprottið af þeirri staðreynd, að lestur bóka færi mönnum víðsýni, lyfti þeim uþp á ein- hvern sjónarhól eða gefi þeim færi á að skyggnast inn í nokkra af leyndardómum mannlífsins, og auðgi þá að reynslu, sem þeir ekki hefðu getað notið að öðrum kosti. Högum vor flestra er jDannig farið, að vort eigið reynslusvið er furðu þröngt. Sá hluti heimsins og mannlífsins, semossauðn- ast að skoða um æfidaga vora, er ótrúlega lítill. Lífið leggur sífelldlega fyrir oss ný vðfangsefni, sem oss eru ókunn af undan- genginni reynslu, og Jaað má segja, að bæk- urnar séu hið eina, sem fvllt getur upp í þessar eyður einstaklingsreynslu vorrar. í bækurnar er skráð reynsla og þekking lið- inna kynslóða. Þær eru boðskapur og arf- leifð forfeðranna til eftirkomendanna, og eins munum vér gefa vorum niðjum þann arf, er vér fáum aflað. Bækurnar kenna oss um löngu horfnar kynslóðir, siði þeirra og háttu, tilfinningar og hugsanir. Þannig skapa þær tengilið á milli aldanna og gera reynslu fjölda kynslóða að einni órofa heild. Ef oss skammsýnum mönnum er á annað borð kleift að læra af árekstrum og reynslu annarra en sjálfra vor, þá gefa bæk- urnar okkur áttavita til að stýra eftir. En bækurnar eru ekki einungis hlutir frá forn- öld eða geymd frá gengnum kynslóðum. í bækurnar er einnig skráð reynsla samtíðar- innar. Þar er að finna allan þann helzta fróðleik, sem talið er, að nútímamaðurinn þurfi að vita. í ritum láta djúpúðgustu hugsuðir samtíðarinnar í ljós hugsanir sín- ar og boðskap til mannanna. En bækurnar benda oss einnig inn í undralönd framtíð- arinnar. Rithöfundar þeir, sem gefin er andlega spektin eru spámenn mannkynsins. I ritum Jæirra birtast draumar og þrár mannkynsins um feguiæi og betri framtíð. Og reynslan hefir þráfaldlega sýnt oss, að draumar skáldanna eru oft orðnir veruleiki fyrr en oss varir. Varla eru þeir menn nú orðnir miklu meira en miðaldra, sem í bernsku sinni lásu ævintýralegar sögur um farartæki er svifu í loftinu með undrahraða, eða ösluðu um hin myrkustu undirdjúp hafsins í kapphlaupi við hvers konar sjó- kindur, þá hristu menn höfuðin yfir fjar- stæðunum og ósköpunum, sem menn gætu látið sér til hugar koma. En nú eru þetta jafnájmeiíanlegar staðreyndir og það, að vér göngum á tveimur fótum. En í bókunum er fleira en Jmrrt safn staðreynda og fróðleiks. Þær eru gæddar lífi og sál. í J^eim kynnumst vér tilfinningalífi, ástríðum og eiginleikum mannlegra sálna, sem fjarr eru voru daglega umhverfi. Allt frá hinum frumstæða villimanni til hins há- menntaða og vitrasta heimsborgara. Þessir menn verða oss allir hugstæðir eins og þeir dveldu mitt á meðal vor. Þannig aukum vér kunningjahóp vorn og það á miklu frjórri og heillavænlegri hátt en með því að umgangast margt af samferðamönnum vor- um. Og ekki má heldur gleyma því, að

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.