Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Qupperneq 48

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Qupperneq 48
34 VITASTÍGURINN N. Kv. heimilum? Þú ert svo barnalegur, Gottlieb! Hefði ég verið lamadýr, myndi ég hafa spýtt á þig, nú ætla ég að fyrirlíta þig í hálfa klukkustund!“ Sören kastaði til höfðinu, einbeittlega, svo að hárið þeyttist frá aug- unum, og gekk síðan brattur og hnarreistur og með flögrandi hálsbindi inn í stofuna. Gottlieb fór á eftir honum og tautaði í hljóði: „Það er ekki til neins að tala við þessi gení, þau gera bara eins og þeim sýn- ist í það og það skip'.ið!" Sören nam staðar á miðju gólfi og litað- ist um. Hann leit björtum augum öll Ijós- in, flöskurnar, blikandi glösin og rétti síð- an armana til Krögers og hrópaði upp yfir sig: „En sú háleita hugsjón hjá þér, virðulegi arftaki Æskuláps, að stofna til gildis fyrir okkur i kvöld! Við þúumst auðvitað, er ekki svo? í Paradís þúast allir, og hérna er paradís. Hvílíkt ljóshaf, lof mér að faðma þig!“ Hann faðmaði Kröger, og virtist því næst verða mjög forviða, er hann varð var Adams Stolz, sem brosti rólega til hans. „Dásamlegi samferðamaður, sem ég mætti nýlega á einu vegamóti lífsins, lof mér að þrýsta hönd þína!“ Hann greip báðar hend- ur Adams og hristi þær hjartanlega. ,,Þú ert líka ljósberi, þú átt vel við hér!“ Hann skákaði sér niður í stóra hægindastól- inn frammi fyrir arninum, teygði frá sér fæturna og brosti. „Hér er gott að vera,“ sagði hann ánægju- lega. „Já, tilveran er yndisleg," sagði Adam hlýlega. „Ég brýt annars aldrei heilann um tilver- una, göfugi ljósberi. Hvers vegna ætti ég að gera það. Ég er í hátíðaskapi, því að mér er lífið hátíð. Allir geta komizt í hátíðaskap, ef þeim aðeins skilst að grípa hvert lítið tæki- færi. Þegar ég fór upp brekkuna héma í dag, sátu tveir steinhöggvarar fyrir utan hús Ámdals, garðyrkjumanns. Þeir sátu á sinni steinahrúgunni hvor og muldu grjót. Ég hugsaði sem svo: Ja svei, hvílík vinna að sitja hérna með blá hlífðargleraugu og höggva stein, gráan, leiðinlegan og tilbreyt- ingarlausan stein fyrir fimm krónur ten- ingsmetrann. Einasta gleði þeina eða ánægja hlýtur að vera það, ef þeim tækist að snuða eftirlitsmanninn á málinu, — en Jrað hlyti að vera hrífandi, — Jrað kom líka í ljós. Ég stóð lengi og glápti á þá, heimsk- um augum og barnalegum, þangað til þeir allt í einu fleygðu frá sér hömrunum, bláu gleraugunum og leðurpjötlunum, sem þeir hafa í lófunum til verndar gegn blöðrum. Þeir tóku sér sæti á breiðum tröppum fyrir framan náðlrús Ámdals. Síðan tók annar þeirra flösku upp úr bakpoka sínum. Það var'sá eldri, og hann drakk fyrst, lengi og rækilega, þurrkaði svo af stútnum á ermi sinni og rétti síðan hinum. Hann kinkaði kolli og drakk. Svo létu þeir í pípur sínar og kveiktu í þeim, og blár reykurinn þyrl- aðist um rauð og útitekin andlit þeirral Þeir brostu við lífinu, hlógu dátt að þeim þrem fjórðaparts rúmmetra, sem þeir höfðu snuðað eftirlitsmanninn á, — í stuttu máli: þeir skemmtu sér kostulega í eyðimörk lífs- ins! Skemmtun og gildi eru öllum jarð- bundnum þrælum grænar vinjar í eyði- mörk lífsins, þ. e. a. s. moldvörpunum. . . . “ Hann kinkaði kolli til Gottliebs. „Moldvörpunum, hö-hö-hö,“ hló Gott- lieb. „Við erum allir moldvörpur að meira eða minna leyti. Það er dýrseðli okkar að skríða um allt og snuðra og grafa í moldinni og öllu, sem henni heyrir til, meðan við erum hér neðra.“ Það virtist sjálfsagt og eðlilegt, að Sören væri miðdepill þessa litla hóps. Hann hélt liðskönnun á rykugu flöskunum gömlu, gældi við þær og ávarpaði þær samkvæmt stéttartign þeirra og virðingu. Sumum þeirra þakkaði hann fyrir síðast, og portvín- inu frá 1839 sýndi hann alveg sérstaka virð- ingu. Æskuþrungið andrúmsloft streymdi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.