Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 50

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 50
36 VITASTÍGURINN N. Kv. vitringanna, og væri því ráðlegast að losa sig við hann. Og er þeir höfðu borið saman ráð sín um hríð, fleygði Gottlieb steininum upp í brunnþróna. Og að því loknu taldi hann sig mun léttari í skapi í tilliti til Ám- dals garðyrkjumanns. Hann hafði nú ann- ars enn frekari þörf fyrir útrás bundinna krafta sinna og litaðist urn eftir „Porra“ eða einhverjum hinna eyrarvinnu-karlanna. En það var því miður of snemma dags enn. Fiskbryggjan var mannauð og tóm. Þegar þeir komu að ferjustaðnum, borg- aði Gottlieb ferjustjóra fimm krónur fyrir að setja ferjuna á fulla ferð, meðan Gott- lieb stæði á bryggjunni og héldi í fangalín- una og reyndi að halda ferjunni. Það tókst, og Gottlieb drundi ,,hö-hö-hö!“ Á leiðinni yfir sundið sofnaði Sören á bekknum. Gottlieb vildi ekki vekja hann, heldur tók hann upp á handlegg sér og bar hann heim. Þegar þeir komu heim að „Mál- arakassanum“, vaknaði Abla og opnaði fyr- ir þeim. Gottlieb rétti Sören að henni og sagði: „Sko, Abla, hvað hann sefur vært, alveg eins og barn í fangi móður sinnar!“ „Hann er fullur, Bramer, komdu honum í rúmið,“ svaraði Abla og gat mjakað þeim inn um dyrnar. IX. Nokkrum dögum síðar var símað til Krögers læknis ofan frá vitanum, síðara hluta dags, og hann beðinn að koma þang- að upp eftir, því að eitt barnanna væri veikt. tJti var stinnings-stormur af hafi og rign- ing, svo að læknirinn varð að fara í olíu- kápu og suðvest. Honum geðjaðst vel að þess háttar veðri; það svalaði honum svo yndislega, þegar hann tók af sér suðvestinn og gekk berhöfðaður. Annars leið honum nú miklu betur eftir nætursvallið síðast. Læninga-aðferð Gottliebs var ekki svo frá- leit. Auðvitað hafði hann fengið ofurlítinn afturkipp, öðru hvoru; en liitt var þó ótví- ræð staðreynd, að hann var tekinn að líta öðrum augum á lífið og tilveruna yfirleitt. A leiðinni upp að vitanum varð hann að nema staðar nokkrum sinnum og hlæja. Það var eins og hann væri að tala við sjálfan sig: — Það er annars skringlegt, að ég, sem nær daglega verð að miðla taugaveikluðu fólki hollráðum, skyldi sjálfur vera orðinn svo ruglaður, að ég varð að leita hjálpar hjá Gottlieb! Já, Gottlieb, sem veit ekki einu sinni, hvað taugar eru! Vitastígurinn var ljóta vegleysan. Öðru hvoru ráku klappirnar upp kryppuna í miðjum stígnum. Og þær voru sléttar og hálar eins og hvalbakur. Kröger reyndi að stikla yfir þessa hvalbaka, en það reyndist furðu erfitt. Hann rann til og rak sig á klapparbrúnirnar, og honum lá við að snúa aftur. „Þetta er ekki mannavegur, heldur máva.“ Hann sá þá fljúga yfir höfði sér. Og garg þeirra líktist einna mest hæðnishlátri yfir því, að hann skyldi ekki geta beitt vængjum eins og þeir! En það var ekki um annað að gera, hann varð að halda áfram. Nú kom hann að sundi, sem alltaf var hálf- gert fen í votviðrum. Nokkrir stórir hnull- ungar höfðu verið lagðir í röð yfir sundið, svo að hægt væri að stökkva stein af steini. Kröger miðaði og stökk, og allt gekk vel í fyrstu; en svo skrikaði honum fótur, og hann rann niður í bleytuna. Hann blotnaði í báða fætur, og svo hafði hann misst nef- klemmurnar sínar. Honum hrutu nokkur blótsyrði af vörum, en áttaði sig þegar. Þennan ávana hélt hann sig hafa lagt niður fyrir mörgum árum. Loksins komst hann þó yfir mýrarsundið og sá nú hilla undir vitann upp yfir efstu klapparbrúnirnar; en nú lá stígurinn yfir klettagjá dálitla, og yfir gjána lá brúar- nefna með lélegu handriði. Áður en Kröger hætti sér út á brúna, tók hann stinnings- fast í handriðið til að reyna, hve traust hún

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.