Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Side 51

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Side 51
N. Kv. VITASTÍGURINN 37 væri; en þá hrundi öll brúin ofan í gjána. Nú var hann laglega settur! Það lá við, að honum hrytu á ný blótsyrði af munni, en hann stillti sig. Skynsamlegast væri auðvit- að að lyfta upp aftur brúarsporðinum, og ekki yrði það gert með blótsyrðum. En það var nú ekki hlaupið að því, enda varð hann þess brátt var, þegar hann tók í handriðið og reyndi að lyfta brúarsporðinum. Hann gæti því allt eins vel stokkið niður í gjána. Þar var að vísu líka vatn, en blautur var hann áður, svo að það gerði hvorki frá né til. Hann setti nú bakið undir brúna og ætlaði að reyna að lyfta henni þannig, en hún rann jafnharðan niður aftur. Þá datt honum það ráð í hug að hlaða steinum und- ir brúarsporðinn. Hann flutti saman nokkra stóra steina og hlóð úr þeim, en það var ekki hlaupið að því að fá þá til að liggja kyrra í hleðslunni. En honum þótti samt gaman að þessu á vissan hátt. Hann bisaði og stritaði og fór að lokum úr olíu- kápunni. Nú skyldi brúin þó svei mér upp á stallinn, hvort sem henni væri ljúft eða leittl Ákafi hans og þróttur magnaðist, og happið og þrákelknin sauð í honum. Verst var þó, að hann sá svo illa gleraugnalaus. Honum varð svo heitt, að hann svitnaði og fann nú, að það tók í bakið. Þegar hann rétti úr sér til að blása mæðinni, rak hann augun í lítinn, snoðklipptan drengjakoll, sem gægðist upp fyrir næstu klapparbrún. Andlitið var alveg kringlótt, rautt og hvítt, — sannkallað smámána-smetti. • Þetta var auðsjáanlega einn af græðling- um Adams Stolz. .,Hvað ert þú að gera?“ var spurt að ofan. >,Eg er að lagfæra það, sem ég hefi rifið niður,“ svaraði Kröger brosandi. „Þess þarf ekki.“ „Jú, drengur minn, það er blátt áfram skylda mín að gera það.“ „Dæmalaus grasasni geturðu verið!“ var nú sagt skýrt og ákveðið. Kröger brá við, en varð samt að hlæja. Hann vissi ekki, hverju svara skyldi. Ef til vill var hann grasasni? Nú kom allur drengurinn í ljós: bústinn og ferskorinn eins og Adam sjálfur. Hann settist á rassinn og renndi sér ofan eftir klöppinni. „Þú eyðileggur buxurnar þínar,“ kallaði Kröger til hans. „Nei, þær eru þessu vanar, þær eru úr skinni.“ „Hvað heitirðu?" „Roosevelt Stolz.“ Hann rétti fram litla, skitna hendi og hló með öllu andlitinu. Síðan stakk hann báðurn liöndum í buxna- vasana á karlmannavísu. Allt í einu spýtti hann í dálítinn poll rétt hjá og sagði: „Getur þú spýtt svona langt?“ Nei, það gat Kröger ekki. „Geturðu þá ekki nokkurn skapaðan hlut?“ „Það er því miður ekki margt, en samt er ég ekki eins mikill grasasni, og þú held- ur, Roosevelt!" „Jú, það ertu einmitt, fyrst þú fórst út á gömlu brúna. Komdu, nú skal ég sýna þér.“ Hann tók í höndina á Kröger og fór með hann umhverfis klapparþrepin, og þar var ný og traustleg brú yfir gjána. „Hérna er nýi vegurinn,“ sagði Roosevelt afar rogginn. Nú gengu þeir saman upp að vitanum. Á leiðinni óð allt á Roosevelt: hænsin hennar mömmu og hvítu endurnar tvær, sem pabbi sagði, að þau ættu að borða á jólunum, en hann hélt nú samt, að það yrði ekkert úr því. „Það er strekkings-vindur í dag,“ sagði hann og horfði út á sjóinn, „hann er vest- lægur, — suðvestan stinnur." „Hvernig veiztu það?“ spurði Kröger. „Heldurðu kannske, að ég kunni ekki kompásinn?“ Hann fór að þylja: Norður- norður til austurs, — norð-norð-austur, — norð-austur til norðurs------“ En þá kom Adam Stolz út og heilsaði lækninum.

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.