Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 53

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 53
'N. Kv. VITASTÍGURINN 39 „Því miður eigum við það ekki til — hér hafa aldrei fyrr verið veikindi á heimilinu." Svipur hennar var þrunginn af sorg og ör- væntingu. „Ég á vatnshelt léreft heima, Tínus veit, hvar það er. Haldið þér, að þér getið staul- ast ofan Vitastíginn í þessu veðri, Stolz? Þá gætuð þér sótt það. Skeð gæti, að stöð- ugur hiti drægi úr kvölunum í bakinu litla.“ „Ég skal fara undir eins,“ sagði Adam og fór að færa sig í frakkann. En Fía var skjótari í snúningum: „Nei, nei, ég er kunnugri veginum, og ég get verið komin aftur að hálfri stundu liðinni! Það verður vonandi í tæka tíð, læknir?" Adam hljóp til hennar og ætlaði að stöðva hana. ,,Þú færð ekki að fara, Fía. Ég banna þér það! Heyrirðu það! Hann greip í gráa sjal- ið, sem hún hafði vafið um höfuð sér. Hún sleit sig af honum og þaut út. Hann stóð eftir aleinn og vandræðalegur með sjalið í hendinni. Hann rétt aðeins grillti í Fíu langt niðri á Vitastígnum, berhöfðaða og hlífðarlausa, en hún hvarf brátt. í myrkrið °g hrakviðrið. „Móðurást," sagði Kröger. „Hún myndi fórna sér svona fyrir hvern sem er,“ sagði Adam. „Hún hefir oft farið ofan í bæ seint á kvöldin, þegar hún hefir h"étt, að einhver kunnugur væri veikur. Fía er svona gerð. Hún er stundum dálítið hvassyrt, en hjartalag hennar er óskeikult." „Drottinn hefir skapað margvíslegar út- gáfur manna," sagði Kröger. „Hann hugsar líklega sitt með því. En nú verð ég víst að bregða mér upp í tuminn og líta eftir Ijósinu." Hann nam staðar í dyr- ttnum og tautaði: „Hlífðarfatalaus í öðru æins veðri! Ég skil ekkert í henni Fíu að hugsa ekki út í þetta!“ „Hún hugsar ekki,“ sagði Kröger og fór inn aftur til Benediktu. Hann staðnæmdist við rúmið og virti fyrir sér dráttfast barns- andlitið. „Kynborningur“, hugsaði hann. Hinar sterku og drátthreinu augnabrúnir og arnarnefið litla hlutu að vera erfðir frá Adarn Weidermann Stolz, admírál. Hann þekkti aftur drættina frá myndinni inni í stofunni. Benedikta var ofurlítið rólegri rétt í svipinn, og hann hélt, að hún svæfi, en hitinn var svo mikill, að hann varð áhyggjufullur á svip og hristi höfuðið. Skömmu síðar kom Fía aftur. Hún hafði verið nákvæmlega hálfa klukkustund. „Hérna er það, læknir!" Hún rétti hon- um böggul, en var svo þreytt og móð, að hún hneig niður í annan hægindastólinn. Hún dró andann ótt og títt, og hjartsláttur hennar var heyranlegur í kyrrðinni. „Lifir hún ennþá, læknir?“ spurði hún með ákafa. „Já, víst lifir hún. Verið þér nú skynsöm, frú Stolz! Munið eftir, að þér eigið bæði mann og börn, þér megið því ekki sprengja sjálfa yður.“ Hún horfði á hann, og augnaráð hennar var fast og sterkt: „Við mæður hugsum ekki um okkur sjálfar. Fari með okkur, sem verkast vill.“ Kröger sagði, að nú skyldi hún fara inn og hvíla sig.. Fía kont eigi með neinar mót- bárur; henni skildist, að gagnvart Kröger lækni tjáði ekki annað en blind hlýðni. Að vísu brá fyrir löngun til andmæla, en liún þagði. Hér var um líf Benediktu að ræða. Læknirinn var inni hjá sjúklingnum og bjó um hitabakstrana .Þeir virtust draga úr þjáningunum, því að henni varð öllu létt- ara um andardráttinn. Hann gaf nákvæm- an gaum að hverri hreyfingu hennar, þar sem hann sat við litla rúmið og laut fram yfir hana. Skömmu síðar kom Adam ofan úr turninum. „Hvernig líður, læknir?" hvíslaði hann. „Von er, meðan varir líf, Stolz.“ Þeir sátu þögulir og hljóðir sinn hvorum megin við rúmið og störðu á sjúklinginn. Á veggnum

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.