Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 54

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 54
40 VITASTÍGURINN N. Kv.. hékk gömul átthyrnd skipsklukka. Læknir- inn horfði á hana annars hugar, unz augu hans héngu við sekúndu-vísinn. Það var annars skringilegur flauta-þyrill! Hann skoppaði hring eftir hring með þvílíku óðagoti, að læknirinn komst að þeirri nið- urstöðu, að slagæð hans hlyti að vera held- ur en ekki í ólagi. Þetta væri ekki „normal púls“. Veggklukkan hlyti að vera með hita! — Stundirnar verða langar á næturverði, sérstaklega á milli tólf og fjögur, enda kalla sjómenn það „hundavöku". Adam og læknirinn læddust öðru hvoru inn í stofuna, en þar var dimmt inni. Hið eina, sem þeir sáu, var hið skæra ljósblik vitans, aðra hvora mínútu. Því svipaði helzt til fágaðs stáls, sem stungið er eldsnöggt í brjóst andstæðingsins. Stormurinn hnykkti og sleit í veslings apalinn, sem studdist upp við þakbrúnina. Það skrjáfaði í greinum hans, áþekkt og þegar ltundur klórar í hurðina og biður um að sleppa sér inn. Það var aðeins apallinn, sem stormurinn tókst á við, því að á öðru þar efra náði hann eigi fangbrögðum. Turninn var sívalur og háll og harður, og húsið stóð svo fast upp að turnfætinum, að eigi var tökum á að ná. Stormurinn þeyttist í loftköstum yfir kletta- bungurnar. Þær voru dansgólf hans, fágað og hált af alda-tuga núningi. . . . „Nú gengur hann meira til vesturs, því að brimið eykst þarna neðra,“ sagði Adam; hann benti á gluggarúðurnar, sem sjórokið lamdi á og rann niður yfir í stríðum straum- um. Fyrir utan var niðdimm nóttin, aðeins ljóssverð vitans, sem brugðið var með vissu millibili. Benedikta kveinkaði sér: „Mamma, mamma, mér líður svo illa. Ég næ ekki andanum." Læknirinn varð alvarlegur á svipinn. Hann tók upp litla sprautu, athugaði hana gaumgæfilega, en lagði hana frá sér aftur. Hann ásetti sér að bíða stundarkorn enn. Adam hafði nána gát á öllum hreyfingum hans, kvíðinn og hryggur í bragði. Þeir sett- ust á ný sinn hvorum megin við rúmið. Þeir sátu grafkyrrir og horfðu á baráttu þá, sem geisaði í litla líkamanum. ,,Á ég að biðja Fíu að koma?“ hvíslaði Adam. Læknirinn hristi höfuðið. Aftur varð þögn. Þeir sátu báðir og lutu fram yfir rúm- ið. En að hurðarbaki stóð Fía eins og stein- gervingur. Þeir sáu hana ekki. Stormurinn hvein og hvæsti. Þeir heyrðu nú greinilega brimgnýinn á vestanverðri eynni. Rokið buldi nú á rúðunum. Þá kvað við skotdynur utan af hafi. Adam stóð upp. Hann spennti greipar,. lyfti upp höndunum og hvíslaði: „Ó, Guð minn góður, hjálpaðu oss, aum- um mönnum!" Stormurinn æstist í sífellu og geisaði fár- trylltur um klappir og bergskalla eyjarinn- ar. Fía var komin fram í dyrnar. Hún studdi sig við dyrastafinn og hvíldi höfuð sitt á öðrum handleggnum. Adam stóð upp og varð hennar var. „En Fía, sefurðu ekki?“ Hann gekk til hennar og strauk blíðlega yfir hár hennar nokkrum sinnum. „Hver getur sofið núna?“ svaraði hún lágt og rétti úr sér og augnaráð hennar var sterkt og bjart. Fyrir aftan stóra skápinn í eldhúsinu, rétt hjá dyrunum, stóð lítill drengur og gægðist fram forvitnislega. Það var Óskar, sem hafði vaknað við skotin. Hann stóð þarna í tómri skyrtunni og honum var kalt, en sagði ekki orð. Honum skildist, að eitt- hvað ægilegt fór hér fram, bæði úti og inni. Þarna varð enginn hans var. Adam stóð um hríð og hlustaði eftir stormköstunum. Svo sagði hann: „Ég held, að hann sé að lægja ofurlítið.“ „Hvað ætlið þér þá að gera?“ spurði læknirinn. „Ég ætla að ganga ofan á Tangann. Ég orka ekki að sitja hér lengur, án þess að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.