Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 56

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 56
42 VITASTÍGURINN N. Kv. ofurlítið," svaraði hann mannalega. Adam brosti og var hreykinn af drengnum sínum. Hann hafði líka buslað í fjörunni og í bátn- um, frá því hann hafði komizt á legg og var því sjóvanur. Loksins komu þeir ofan að sjónum. Það braut upp yfir Tangann. Hefði naustið ekki verið boltað niður í bergið, þá myndi sjórinn liafa sópað því á burt fyrir löngu. „Eigum við ekki að reyna að setja fram prammann, pabbi?“ spurði Óskar. „Heldurðu að hann fleyti sér í þessum sjó, drengur minn?“ „Hann fyllir kannske, en þá verðum við að ausa,“ sagði hann borginntannlega. „Það er svo mikið maurildi í kvöld,“ taut- aði Adam í hljóði. „Mamma segir, að þá sé ekki eins kalt í sjónum." „Það er gott fyrir aumingjana, sem nú liggja úti á skipsflaki einhvers staðar,“ sagði Adam. Þeir sátu nú lengi og rýndu út í myrkrið á svarta og hvíta bylgjukambana, sem geist- ust að landi. Þeir hleruðu eftir kalli, en heyrðu ekkert. „Ég held, að okkur hafi misheyrst þarna upp frá, drengur minn. Það hefir víst ekk- ert verið." Þeir gengu nú alveg út á Tanga-oddann, en urðu að hlaupa undan ólögunum í hvert sinn, er stærstu öldurnar brotnuðu á klapp- arbrúnunum og þeyttu brimlöðrinu langt upp á land. Þeir störðu út í sortann til að athuga, hvort nokkurt rekald kynni að ber- ast að landi. Það vildi stundum til, að ein- hver skipsbrotsmaðurinn bjargaði sér á hurðarfleka eða tveim-þrem árum. En það var sjaldgæft að komast lífs af á Hross- hólmaboðunum. Óskar þreif snöggt í handlegg föður síns. „Pabbi lítt’ á, þarna, er þarna ekki eitt- hvað svart, sem er á reki?“ Þeir gengu eins langt fram á Tangann og auðið var og héld- ust í hendur. „Mér sýnist það vera mannsltöfuð, pabbi!“ „Við verðum að reyna að setja fram prammann, Óskar; annars ber'straumurinn j)að suður og fram hjá Tanganum, og þá er úti um joað. Hreyfir það sig? Heldurðu, að Jrað sé eitthvað með lífi?“ „£g get ekki séð það. En við skulum setja út prammann, pabbi. Togaðu í fanga- línuna, svo skal ég ýta á eftir,“ kallaði Óskar. Hann setti bakið undir gaflinn og ýtti, en Adam brá fangalínunni um herðar sér og dró af öllum mætti. Pramminn kipptist til á hlunnunum og rann síðan áfram niður í flæðarmálið. Hlémegin við Tangann var nærri J)ví lágdautt, og þar komu þeir prammanum loks á flot. „Þú getur ausið, drengur minn. Taktu blikkfötuna, sem hangir á veggnum. Svo skal ég róa,“ sagði Adam. Þegar kom út fyrir oddann, mættu þeim hvítfyssandi öldurnar. Adam spyrndi við fótum og reri af öllum mætti. Olíustakkur- inn rifnaði um þvert bakið af átökunum, því að Adam varð að taka löng áratök og þung. Óskar jós af öllum mætti, en austur- inn flaut yfir þiljurnar. „Sérðu J^að núna, Óskar?“ kallaði Adam. Drengurinn rétti úr sér, sem mest hann mátti, og liélt sér í borðstokkinn. „Þarna er það — þarna — þarna, tvö þrjú áratog í burtu, nei, suður á við, pabbi! Taktu í árina á stjórnborða!“ Drengurinn var alveg æstur. Hann ýtti á árarnar til að hjálpa föður sínum og kallaði í sífellu: „Hertu þig, pabbi, hertu þig, nú erum við komnir þangað — róðu með hægri árinni, með stjórnborðsárinni, heyrirðu!" Óskar teygði sig út yfir gafl prammans eins langt og hann gat og var viðbúinn að grípa. „Dettu ekki útbyrðis, drengur, gáðu að þér,“ kallaði Adam. Óskar heyrði ekki, hann starði aðeins niður í dimmgrænt djúpið, sem ólgaði um-

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.