Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 57

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Blaðsíða 57
N. Kv. VITASTÍGURINN 43 hverfis prammann. Svo þreif hann allt í einu báðum höndum í eitthvað utanborðs og dró það upp í prammann. Það var hund- ur. Stór, dökkbrúnn skipshundur, hrokk- inhærður. Hann sleikti hönd drengsins, en gat varla hreyft sig. Adam var algerlega þraut-uppgefinn í handleggjunum, og hann verkjaði í úlnliðina. Hann varð því að snúa bátnum aftur til lands. Það var á einkis manns færi að halda lengra í þessum ofsa. Hann bar hundinn í land og lagði hann á poka inni í naustinu .Svo stóðu feðgarnir um hríð og rýndu út á sjóinn. ,,Það koma kannske fleiri, pabbi,“ sagði Óskar. ,,Það held ég því miður ekki. Það er að- eins hundur, sem getur bjargað sér alla leið hingað utan frá Hrosshólmum." Adam stóð um hríð hugsi. Hann horfði ástúðlega og lengi á drenginn sinn, sem hélt sér í naustið, meðan hann rýndi út á sjóinn Það var viljaþrek Fíu og fórnfýsi, sem í drengnum bjó. Hann var líka sterkur eins og bjarnarhúnn! Og aðeins tíu ára gamall — nei, ellefu ára. Það brá fyrir angurværð í svip Adams. Frumhlaup foreldranna bitn- aði vonandi ekki á drengnum. Svo hefni- gjarn væri Guð ekki. Nei, fyrir það yrðu þau sjálf að svara. — — — Síðan sneri hann sér við og sagði: ;,Komdu, nú skulum við fara heirn aftur, drengur minn. Hér er því miður ekki meira fyrir okkur að gera, og þér er orðið svo kalt, að það glamra í þér tennurnar.“ „Æ, getum við ekki beðið ofurlítið enn, pabbi, það gæti þó skeð------“, hann gekk fram í dyrnar og horfði út. „Við getum auðvitað dokað við ofurlítið enn, fyrst þú vilt það endilega," sagði Adam. Þeir stóðu nú um hríð í hlé við húsið, en öldurnar geistust látlaust að landi eins og áður. Eina veðurbreytingin var sú, að nú hafði hætt að rigna, og rofaði lítið eitt til í lofti, öðru hvoru, og sást til stjarna. „Nú held ég, að hann sé farinn að vera nokkuð andstyttri," sagði Adam. „Hver er andstyttri?“ spurði Óskar. „Vindurinn, auðvitað, hann er heldur að lægja, að því er mér virðist. — Nei, nú verð- um við að fara heim, því eru þó takmörk sett, hvað svona angi eins og þú getur þol- að. Ég sé, að þú hríðskelfur. Komdu nú!“ Hann tók í hönd drengsins. „Já, auðvitað er mér dálítið kalt, en getir þú þolað það, get ég Jrað líka. Hann barði sér rösklega, eins og hann hafði séð sjó- mennina gera til að hita sér. Storminn lægði nú óðum, með hrotum og hviðum. Það er sem sé vani, að hljómsveitin leiki nokkra sterka fall-liði, áður en tjaldið er dregið upp, og áður en kyrrð er fallin á í salnum. Nú var skammt til morgruns. Him- O ininn tók þegar að roðna í austri. Feðgarnir héldu heim á leið. Nú veittist Jreim auðvelt að halda stígnum, Jdví að þeir sáu turninn og húsið greinilega fram und- an sér. Þegar jreir voru komnir spölkorn upp eftir, stóðu þeir við til að gá út á hafið. Þeir grilltu nú allvel jaðarlínur Hross- hólmanna. Óskar fullyrti, að hann sæi reyk- háf á gufuskipi upp úr sjónum fram undan syðra hólminum, en Adarn hélt, að honunr missýndist. Hundurinn gat aðeins gengið fáein spor í einu, og það var blóð í förunum. Þófarnir voru rifnir til blóðs á framfótunum. Senni- lega hafði hann á leiðinni yfir sundið reynt að klifra upp á eitthvert skerið, en brimið skolað lionum út aftur; en á skerjum þess- um er fullt af hrúðrum og egghvössum brúnunr. Adam tók nú hundinn upp og bar lrann í fanginu, og hundurinn leit upp á liann skærum, þakklátum augum. Það er svo einkennilegt um dýrin. Augu þeitTa lýsa tryggð og angurblíðu. Adam varð hugs- að til selanna, sem hann hafði skotið ein- 6*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.