Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Síða 58

Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Síða 58
44 VITASTÍGURINN N. Kv. mitt á þessum sömu slóðum, þar sem þeir liöfðu nú dregið upp hundinn.------ „Ég vildi óska, að Benediktu liði nú bet- ur,“ sagði Adam, er þeir voru komnir upp að vitanum. Hann hafði ekki nefnt hana, og ef til vill ekki einu sinni haft hana í huga, meðan hann var úti í ofviðrinu. Eft- irvæntingin og erfiðið höfðu bundið alla orku hans, hug hans og krafta. Feðgarnir stóðu stundarkorn og vörpuðu mæðinni, áður en þeir gengu inn. í morgunskím- unni sá Adam nú fyrst, hve drengurinn var fölur. Fötin hans voru rennblaut og klesst- ust inn í kroppinn. „Bara að þú verðir nú ekki dauðveikur ofan á allt saman, drengurinn minn. — Þetta hefir verið mikil áreynsla fyrir svona lítinn peyja!“ „Puh, ég hefi nú svo sem verið blautur oft áður,“ sagði Óskar, um leið og hann svipti af sér olíustakknum. „Já, en — en — samt,“ sagði Adam. Hann fór úr stígvélunum og hellti úr þeim. „Bara að henni Benediktu líði nú betur,“ sagði hann á ný í hljóði. Kröger læknir kom á móti þeim. Hann brosti til þeirra og sagði: „En hvað þið urðuð lengi — ég var farinn •að verða smeykur-------“ „Benedikta?" sagði Adam og horfði á lækninn spurnaraugum. „Hún sefur rólega og vært núna. Sótt- brigðin eru um garð gengin------", hann náði ekki að segja meira. Adam féll á kné við dragkistuna yfir i horninu. Hann spennti greipar, lyfti höndunum upp á móti litlu Kristmyndinni hvítu og sagði upphátt: „Þökk — þökk sé þér, drottinn minn og Guð!“ Óskar stóð grafkyrr og horfði á föður sinn, en svo virtist honum, að hann yrði líka eitthvað að segja; hann rétti Kröger lækni höndina sína og sagði: „Kærar þakk- ir.“ Læknirinn brosti til hans, klappaði honum á kollinn og sagði: „Þú ert á réttri leið, drengur minn.“ Eftir á sagði hann við Adam, að sér virtist þetta hafa verið allt of þung raun fyrir svona ungan dreng. „Þér hafið rétt að mæla, læknir, en hann er eins og Fía; hún heldur áfram, þangað til hún hnígur niður. Það hefir hún ætíð gert, og það mun hún gera ævina á enda,“ mælti Adam. Hundurinn var stór og fallegur. Feldur hans var þétthrokkinn og brúnn á lit. Á plötu á hálsbandi hans var grafið: „E/S. Sancho". Morguninn eftir var hann búinn að ná sér, en var þó ofurlítið haltur og sár- fættur á öllum fótum. Roosevelt sagðist undir eins eiga hundinn, og hann teymdi hann með sér um allt og kallaði hann „Sancho“. Roosevelt gat ekki skilið, hvers vegna hundurinn vildi endilega fara ofan að nausti, en þar gat hann staðið stundum saman og horft ýlfrandi í áttina til Hross- hólmanna. Nú var orðið nærri því lygnt, og sólin blikaði á breiðar og geysilangar undiröld- urnar langt á haf út; en á hólmum og skerj- um braut enn með dimmum, þungum gný. Læknirinn og Adam höfðu lokið morg- unverði. Þeir stóðu nú uppi í vitaturninum og horfðu út á hafið til skiptis í sjónaukann stóra. „Það stendur heima með það, sem Óskar liélt, að hann hefði séð úti við Hrosshólm- ana.“ „Nú?“ sagði læknirinn í spurnarróm. Reykháfur á sokknu eimskipi. Ég sé hann nú greinilega.“ „Það er sennilega rekald víða eftir annað eins ofviðri?" sagði Kröger. „Æ já, það rekur ýmislegt á land, hingað og þangað."

x

Nýjar kvöldvökur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.