Nýjar kvöldvökur - 01.01.1944, Page 60
N. Kv.
INGER BENTZON:
Sumarfrí greifafrúarinnar.
— Öðm hvoru verður maður að fá að
njóta lífsins! —
Þrjár stofuþernur á léttum skóm höfðu
þegar lengi verið önnum kafnar við hrein-
gerningu og að taka til, er einkaþernan
læddist inn í svefnherbergi greifafrúarinn-
ar og dró gluggatjöldin frá gluggunum,
sem sneru út að trjágarðinum. Hún bland-
aði í baðkerið, sótti silfurbakkann með te-
inu og ristu brauði og lagði fram fötin og
annað, er heyrði klæðnaðinum til, meðan
greifinnan var í baðkerinu. Svo rétti hún
henni fötin, hvert plaggið á fætur öðru,
kraup niður og færði hana í sokka og skó,
burstaði hið þykka hár hennar fyrir fram-
an spegilinn, færði hana í léttan morgun-
kjól, dreypti vitund af Kölnarvatni í vasa-
klút hennar, sem bún rétti henni að lokum.
Greifinnan fór ofan til að borða. Þjónn
lauk upp hurðunum á leið hennar, annar
gekk um beina við borðið, og sá þriðji
gekk í virðulegri fjarlægð á eftir henni, er
hún eftir á gekk í garðinum sér til hressing-
ar.
Er hún kom lieim, beið einkaþernan
hennar með þurra skó og annan kjól.
Þjónninn kom með nokkur bréf á silfur-
bakka. Er greifinnan hafði lesið þau, fór
hún að skoða blómaskrautið, sem garð-
yrkjumaðurinn hafði borið inn úr vermi-
skálunum og blómgerðinu. Svo borðaði
hún litlaskattinn, og þá gengu tveir þjónar
um beina. Eftir á kom þernan með yfirhöfn
hennar, og stóri bíllinn beið við aðaldyrn-
ar. Allir þrír þjónarnir stóðu teinréttir á
tröppu-þrepinu, er hún ók af stað. Greif-
innan ætlaði í fáeinar heimsóknir, nafn-
spjalda-veski hennar með gull-fangamark-
inu á lá eins og vant var í öðrum hliðarvasa
bílsins.
Greifinnan gerði skyndi-heimsókn á
þremur stöðum — og þar voru garðstofurn-
ar allar eins; hún skoðaði þrjá garða — þar
sem sömu skrautjurtirnar og blómin voru
gróðursett; hún lét skila körfu með smá-
kökum í á barnahæli, þar sem öll börnin
voru vel greidd og sápuþvegin í tilefni af
heimsókninni, og ók svo heim aftur til
hallar sinnar, þar sem allir þrír þjónarnir
stóðu á sama þrepinu og áður, eins og þeir
hefðu ekki lireyft sig þaðan á meðan hún
var í burtu.
Greifinnan skrifaði tvö-þrjú smá-bréfr
prjónaði fáeinar umferðir á sjali handa
gamalli konu á Elliheimilinu, fór svo upp
til að baða sig á ný og láta hafa fataskipti
á sér undir miðdegisverðinn, borðaði fjóra
rétti, sem þrír þjónar framreiddu, drakk
kaffi í garð-salnum, lagði kabal og las ofur-
lítið í gamaldags róman, þangað til kominn
var háttatími. Það var tunglsskin úti, og
Iiana langaði til að ganga sér til skemmtun-
ar í lystigarðinum, en þernan beið hennar,
og greifinnan varð að fara upp til að láta
hana hjálpa sér að afklæðast og bursta
hárið.
Og loksins lá greifinnan bleik og þreytt
í rúmi sínu.
Greifinnan var að snúast í tveggja her-
bergja íbúð við að gera hreint og taka til!
Hún var í stórum, grófgerðum slopp utan-
yfir kjólnum, og hafði klút bundinn um
hárið. Hún lét ryksuguna suða glaðlega,
þerraði ryk, þvoði upp eftir morgunverð-